Æskan - 01.11.1979, Blaðsíða 69
17. Áöur en Einar gat sagt nokkuð,
opnuðust dyrnar upp á gátt, og á eftir
drengnum á stærð við Einar kom stór
drengur. Og á eftir stóra drengnum
kom stór telpa með rauðar fléttur.
— Ég er að leita að einhverjum til
þess að leika mér við, sagði Einar.
— Þú ert á réttum stað til þess,
sagði stóra telpan.
— Og þú ert heppinn með daginn,
sagði stóri drengurinn. — Hún á af-
mæli í dag.
— Og þú komst alveg mátulega,
sagði drengurinn á stærð við Einar.
18. — Hvað er í pokanum þínum?
spurði litla telpan og tók fingurinn út
úr munninum.
— Kökur, sagði Einar. — Handa
okkur öllum.
Og hundurinn sagði: — Voff, voff,
voff! Hann var að gelta, af því að fleiri
börn voru á leiðinni inn ganginn.
19. Einar leit út um dyrnar. Hann sá
börn koma upp eftir götunni. Börn
komu úr næstum öllum húsunum við
götuna. Og öll börnin voru á leiðinni
aö þessu núsi og að þessum dyrum.
Og Einar fór með þeim inn til þess
að vera í afmælisveislunni með þeim.
FIMLEIKAMAÐURINN
1. Frændi, hún frænka segir að þú
sért líka duglegur í stökki.
2. Alveg rétt, börnin góð. Ég þótti
ágætur stökkmaður í minni tíð.
3. ----takið þið nú eftir, hvernig
ég stekk til: einn — tveir —
4. Þrír.
5. -------
6. Hvar eruð þið, börn? Mig langar
að sýna ykkur nokkuð. —
L
63