Æskan - 01.11.1979, Blaðsíða 75
ÞEKKIRÐU LANDIÐ?
Þá erum við komin að mynd nr. 11. Nú er það ykkar verk
að svara rétt. Hvaðan er myndin? Frestur til að skila
svörum er tii 15. janúar 1980. Bókaverðlaun verða veitt
fyrir rétt svör.
Hvaðan er myndin? .....................................
f •
Nafn: .................................................
Heimili: ..............................................
Póststöð: .............................................
Utanáskrift: Æskan (Þekkirðu landið?), Pósthólf 14,
Reykjavík.
BÚIÐ TIL GESTAÞRAUTIR
Þessi þraut er í því fólgin að ná
hjartalaga stykkinu frá hinu, án þess
að losa neitt sundur um samskeytin. í
fljótu bragði virðist þetta ekki mögu-
legt. Gestaþraut þessa má búa til úr
sléttum vír. Hafið hana u. þ. b. helm-
ingi stærri en sýnt er á myndinni. Best
er ef hægt er að lóða öll samskeytin
saman.
Þraut II
Þrjú göt eru boruð á spýtu, eins og
sést á myndinni. í gegnum miðgatið er
dreginn tvöfaldur þráður og endanum
síðan brugðið gegnum lykkjuna, sinn
hringurinn þræddur upp á hvorn
enda og endarnir síðan festir í enda-
göt spýtunnar, sem er u. þ. b. 20 cm
löng.
Þrautin er að bregða þræðinum
þannig, að báóir hringirnirséu komnir
í aðra lykkjuna — þar sem annar er nú
— og skilja þá síðan aftur, án þess að
leysa enda þráðarins.
BÚIÐ TIL GESTAÞRAUTIR
Góða beygjutöng þarf að hafa til að
búa þessa þraut til og vírinn þarf að
vera mátulega þjáll. Myndin skýrir sig
sjálf, en vandinn er sá að ná mannin-
um úr gálganum. Lóðið samskeytin
helst saman, svo ekki sé hægt að hafa
rangt við, þegar þrautin er leyst.
G.H.
69