Æskan - 01.11.1979, Blaðsíða 22
Anna lui>
Ceumert
Þegar ég ætla aö reyna aö lýsa með orðum jólunum á
æskuheimili mínu, verð ég gripin undarlegri viðkvæmni,
það kemur kökkur í hálsinn á mér, og mig langar helst að
gráta — en orðin hverfa mér. Samt get ég ekki ímyndað
mér, að neinn hafi átt yndislegri jól en við á heimili okkar.
Jólin á íslandi eru sjálfsagt alveg eins og jólin í Dan-
mörku, nema hvað við borðum rjúpur í stað gæsa. Börnin
Anna lltla - örugg hjá stóru systur, Míllu - fær sér blund. þar hlakka til jólanna á sama hátt, og hugurinn snýst um
I slenska leikkonan Anna Borg Reumert var fædd í
Reykjavík árið 1903. Foreidrar hennar voru hjónin
Bergþór Jósefsson og Stefanía Guðmundsdóttir leik-
kona. Þegar á barnsaldri vakti Anna á sér athygli með
upplestri smákvæða, sem móðir hennar kenndi henni,
og snemma vandist hún leiksviðinu, hún var fyrsta Tóta í
Fjalla-Evindi Jóhanns Sigurjónssonar, lék líka kornung
litla telpu í Galdra-Lofti eftir sama höfund. Árið 1916 lék
Anna „Óla smaladreng“, sem móðir hennar bjó á leik-
svið. Næstu árin kom Anna fram í ýmsum smáhlut-
verkum hér heima og í för með móður sinni og systkin-
um í Ameríku árið 1920.
Árið 1925 hélt Anna til Kaupmannahafnar og hóf
skólagöngu við Konunglega leikhúsið. Árið 1932
giftist Anna einum af frægustu leikurum Dana, Paul
Reumert, en þá var hún orðin fastráðin leikkona við
Konunglega leikhúsið. Ails mun Anna hafa leikið
70— 80 stór hlutverk, auk ótal margra smærri hlutverka.
Viðurkenningu hlaut Anna Borg Reumert með heiðurs-
merkjum frá l'slandi, Danmörku og Svíþjóð.
Eftirfarandi grein er lýsing önnu Borg Reumert á
jólunum á æskuheimili hennar hér í Reykjavík, en grein
þessi birtist í dönsku blaði fyrir mörgum árum.
Anna Borg sem Fjallkonan 17. júní 1948. Myndin tekin í Al-
þingishússgarðinum.
cKíá
bernskúheimili
mínu
20
■■■■