Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1940, Page 41
Sigbjörn Sigurðsson Hofteig.
eftir G. J. Oleson.
Sigbj:jrn Sigurðsson Hofteig, 1841—1937. Á
fyrstu árum íslendinga hér í álfu, voru það bændur
og alþýðumenn, sem íslenzka merkið báru fyrst
fram til sigurs. Dugnaður, framsýni og manndóm-
ur þeirra í hinni örðugu lífsbaráttu. ávann íslend-
ingum hróður þann, sem aldrei síðan hefir verið
frá þeim tekinn. Það var ekki úrkast h'innar ís-
lenzku þjóðar, sem vestur flutti frá menningarlegu
sjónarmiði skoðað, þeir voru flestir fátækir, en
þeir áttu andlegan auð og manndóms yfirburði, sem
haslaði þeim völl meðal bestu manna hjá hvaða hjóð,
sem hefði verið. Þeir voru karlar í krapinu margir
íslenzku leikmennirnir, bæði hvað vit, framtakssemi
og höfðingsskap snerti, og í flestum og jafnvel öllum
bygðum íslendinga voru þessir afburða menn —•
héraðshöfðingjar, sem höfuð og herðar báru yfir
fjöldann. Einn af þessum mönnum var maðurinn,
sem eg vil nú hér í stuttu máli minnast, — Sigbjörn
Sigurðsson Hofteig, sem alla sína tíð hér vestra var
héraðshöfðingi í Lyon County í Minnesota.
Hann var Austfirðingur að ætt og uppruna,
fæddur á Breiðumýri í Vopnafirði, 31. desember
1841 Faðir hans var Sigurður Rustikusson, bónda
á Breiðumýri Bjarnasonar. Kona Bjarna var Kristín
Rustikusdóttir Þorsteinssonar bónda á Koreksstöð-
um og víðar. Þorsteinn faðir Rustikusar, var Mag-
nússon bóndi á Sleðbrjót um 1700. Kona Þorsteins
en móðir Rustikusar, var Vigdís Styrbjarnardóttir