Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1940, Blaðsíða 66
66 ÓLAFUR S. THORGEIRSSON:
hleypur, til heimilis í Brown-bygð; 8. Jenny, gift
manni af enskum ættum, búsett [ Sask.; 9. Eggert
Líndal, tekinn í fóstur er móðir hans dó, af Gísla
Ólafssyni til heimilis í grend við Brown; 10, Andrew,
fóstvaður af J. M. Gíslasyni.
Landnemi N.VJ/4 S, 1-6
Bótólfur Holo (Olson)
Það er naumast hægt að segja sögu landnáms
fslendinga í Brown-bygð, án þess að minnast hinna
valinkunnu norsku hjóna, Bótólfs Holo og konu hans.
Höfðu þau reynst bjargvættir og leiðsögumenn hin-
um ísl. innflytjendum frá Nýja-íslandi og víðar að til
N. Dakota, á fyrri árum, meðan þau bjuggu vestur
af Cavalier, N. Dak.
Allmörgum árum áður en íslendingar fluttust
hingað, höfðu þau tekið sér bólfestu á ofan greindu
landi og eins fljótt og landið var frjálst fyrir almenn-
ing setti Bótólfur heimilisrétt á landið og bjó þar
til dauðadags. Syðra hafði hann gengið undir
Olson nafni. Er hingað kom tók hann upp nafnið
Holo. Hafði hann tekið þátt í þrælastríði Banda-
ríkjanna í liði norðanmanna. 'Fyrir þá frammistöðu
hlaut hann eftirlaun meðan hann lifði.
Ekki reyndust þau síður íslendingum hér en
syðra, töluðu þau bæði íslenzku og flest af börnum
þeirra. Voru þau mestu sæmdarhjón í hvívetna og
gestrisin og skemtileg heim að sækja. Eru nú gömlu
hjónin dáin fyrir alllöngu síðan.
Börn þeirra hjóna er hingað komu eru: 1. Anna,
giftist æfintýramanni af þýzkum ættum; skildu þau
fyrir mörgum árum, en Anna býr á föðurleifð sinni
hér með Lars bróður sínum; 2. Carey, gift manni af
skozkum ættum, heimilisfang ókunnugt; 3. Myr-
andy, gift enskum manni, búsett í Winnipeg; 4.
Mary, gift enskum manni, búsett í Morden; 5.