Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1941, Síða 43
ALMANAK 1941
43
Sigfússon þyrfti nokkurra meðmæla, ætti konu-
valið að vera honum ærin meðmæli.
En Frímann K. Sigfússon þarf engra með-
mæla. Hann er maður vel gefinn um marga hluti.
Hann átti mikinn og góðan þátt í félagsmálum
Blaine íslendinga meðan hann var þar og lét þá
allmikið til sín taka. Hann er maður mikill vexti
og karlmannlegur. Hann er og vel skynsamur —
mun hafa gengið á verzlunarskóla eitthvað austur
í Dakota, er þess utan sjálfmentaður maður. Sann-
ur Islendingur er hann, án þess þó að láta það
hindra samkomulag sitt við umhverfi það, er
hann hefir lifað í. Eins og gefur að skilja, hafa
erfiðis kringumstæður markað honum bás á síð-
ari árum: ómegð, heilsuleysi og svo það, sem allir
hafa átt í höggi við síðan 1930 — vinnuleysi. Samt
lætur hann, og þau hjón bæði eftir sig mikið og
gott dagsverk. Börnin öll sérlega vel gefin. Þrjár
elstu dæturnar frá síðara hjónabandi útskrifuðust
af miðskóla með hæstu einkunn hver á eftir ann-
ari í þrjú ár, og útlit fyrir, að yngri börnin haldi
áfram þeirri reglu.
Frimann K. Sigfússon er hugsandi maður í
beztu merkingu þess orðs. Hann er einn af þeim,
sem tilveran virðist hafa ætlað annað, en að njóta
gefinna gáfna til eigin hagsmuna.
Guðbjörg og Vigfús Vopni. — Guðbjörg
Vopni er fædd þann 23. maí 1864 að Hólmlátri
á Skógarströnd í Snæfellsnessýslu. Foreldrar
hennar voru hjónin Guðbrandur Guðbrandsson
Magnússonar, sem allan sinn búskap bjó á ofan-
nefndum bæ, og Lilja ólafsdóttir Símonarsonar.
Ölafur faðir Lilju og Valdís móðir Dr. Valtýs Guð-
mundssonar voru náskyld. Guðbrandur Magnús-
son á Hólmlátri var á sinni tíð talinn einn af rík-
ustu bændum á íslandi og kallaður Guðbrandur
ríki. Kristíana kona Daníels Sigurðssonar í Shoal