Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1941, Qupperneq 45
ALMANAK 1941
45
hann sitja þar og klappaði honum í sífellu, meðan
á bænagerðinni stóð, og sem fór fram í hljóði.
Næsta dag fórum við tímanlega af stað, og
náðum þann dag til Brandon, en sú vegalengd
mun nær þvi að vera 50 mílur. Þar gistum við á
hóteli.
Þriðja daginn héldum við enn áfram og kom-
um að kveldi dags þess að bóndabýli einu, og báð-
um um gistingu. Var okkur húsaskjól velkomið,
en rúm ekki, því þar var ekki nema eitt rúm til. f
því svaf bóndi og þrjú börn — konan var ekki
heima. Annaðist bóndi börnin í fjarveru hennar.
Við hjónin gerðum okkur flatsæng á gólfinu, úr
okkar eigin rúmfötum, sváfum svo þar og fæddum
okkur sjálf, og mátti vel við það bjargast. Við
höfðum sem sé búist við þessu og höfðum því
nesti.
Fjórða daginn komum við seint að stóru húsi.
Á því sáum við enga glugga. Fanst mér ekki
árennilegt, að beiðast þar gistingar, en nú var
ekki um annað að gera. Þegar inn í húsið kom.
sáum við, að því var skift í tvo jafna hluti, með
langborði einu. ar okkur leyft, að hreiðra um
okkur fyrir framan þetta borð, sváfum við enn á
gólfi við okkar eigin föt, og fæddum okkur sjálf.
Ekki man eg til, að þar sæum við nema einn
mann, þann er húsum réði. Síðan hefir mér
dottið í hug, að þarna hafi verið smáverzlun, eins
og stundum var í þá daga út um land, þar sem
langt var á milli kauptúna. Vera má og, að fólk
hafi þar verið og hafst við uppi á lofti, þó eg ekki
yrði þess vör.
Fimta daginn lögðum við af stað, án þess að
sjá eða hafa tal af nokkrum manni, og lentum að
kvöldi á gestgjafahúsi í smábæ einum, og áttum
þar góða nótt. Ekki man eg hvað sá bær hét.
Næsta morgun, sem var sjötti dagur ferða-