Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1941, Síða 49
ALMANAK 1941
49
svo minnir mig að bærinn héti. Var okkur full
þörf á aðhlynning fyrir menn og skepnur.
Næsta dag komum við til Helga bónda,
tengdaföður Jóns Einarssonar í Foam Lake, og
fengum þar ágætar viðtökur. Þaðan héldum við
til Guðbrandar Guðbrandssonar bróður míns og
vorum þar í tvö ár, og töpuðum þar öllu, sem við
áttum. Þaðan fluttum við til Winnipeg, og höfð-
um með okkur Sigþrúði Kristínu Gísladóttur, sem
við tókum til fósturs, þá 18 mánaða gamla. í
Winnipeg komum við okkur upp laglegu heimili
og þar leið okkur vel.
Þannig er sagan.
Jón maður Guðbjargar féll af byggingu, sem
hann vann við, 30. apríl 1904 og dó samstundis.
Að honum var mannskaði, því hann var merkur
og vandaður maður.
örlögin létu skamt á milli stórra höggva að
því, er Guðbjörgu snerti, því fósturdóttur sína
misti hún 18. ágúst 1906. Hún druknaði að Win-
nipeg Beach. Festi Guðbjörg ekki yndi í Winni-
peg eftir það. Seldi eignir sínar þar og flutti til
Blaine, Washington, og var um tíma hjá frænd-
fólki sínu, sem þar átti heimili á þeim árum, Guð-
brandi Sveinbjarnarson og konu hans Maríu
ísaksdóttur. Þaðan fór hún til Vancouver, B. C.
Kyntist þar Vigfúsi Vopna og giftist honum 22.
des. sama ár. Áttu þau heim í Vancouver, B. C.,
þar til 15. febr. 1908, að þau fluttu til Bellingham
og eru þar nú.
Með fyrra manni sínum átti Guðbjörg eina
dóttur, sem Katrin hét. Hana mistu þau 16
vikna gamla. Auk fóstui’dótturinnar, sem þegar
er getið, ólst bróðursonur hennar, Karl Július,
upp hjá henni frá því hann var átta ára gamall,
kom með henni vestur að hafi og átti heimili hjá
henni til 18 ára aldurs.