Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1941, Side 52
Í2
ÓLAFUR S. THORGEIRSSON:
þar eru þau nú. Stefán er lipurmenni og söng-
maður góður. — Þau hjón bæði vel látin.
Stefán og Guðrún hafa eignast 12 börn. Fjög-
ur af þeim dóu ung. Þessi lifa: Óskar, alinn upp
af föðurbróður sínum Bjarna, formanni á Sauð-
árkrók; Helga, kona Gilberts bónda Sveinbjörns-
sonar, nálægt Wynyard, Sask.; Guðmundur,
heima; Jóhannes, vinnur á Strandferðaskipum,
annars heima; Jón og Sigurrós, tvíburar, heima;
Ralph, alinn upp hjá Guðrúnu föðursystur sinni
Thorleifsson í Winnipeg.
Einar M. Einarsson er fæddur 7. febrúar 1869,
að Steinsholti í Reykjavík. Faðir Einars var
Magnús Einarsson járnsmiður, Einarssonar bónda
í Sauðargerði, við Reykjavík. Voru þeir feðgar í
ætt við Dr. Finsen og frændur hans — hvar ættir
koma saman eða hvernig er ekki nógu ljóst til að
setja hér. Móðir Einars en kona Magnúsar hét
Sigríður. Hún var Guðmundsdóttir (alin upp hjá
Ámunda bónda á Miðengi). Þegar Einar var fimm
ára, lézt móðir hans. Fór hann þá í fóstur föður-
systur sinnar, Jóhönnu Einarsdóttur, þá ekkju
Péturs Jónssonar, sem lengi var ritari hjá Árna
landfógeta Thorsteinsson. Hjá Jóhönnu var Einar
fram yfir fermingu, fór þá til föður síns og var
með honum þangað til hann, þ. e. Magnús, flutti
til Ameríku 1886. Magnús flutti til Utah.
Einar stundaði sjó þegar á unga aldri hjá
ýmsum. Útskrifaðist af Sjómannaskólanum í
Reykjavík 1896. Var skipstjóri fyrir aðra næstu
þrjú ár. Flutti til Ameríku 1899, til Spanish Fork,
Utah, þar kvæntist hann 10. sept. 1900.
Kona Einars er Margrét Sigurðardóttir, fædd
6. sept. 1875 í Gröf í Skaftártungu, V.-Skaftafells-
sýslu. Foreldrar hennar voru hjónin Sigurður
Ásmundsson Finnbogasonar í Kotey á Meðallandi