Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1941, Side 110
110
ÓLAFUR S. THORGEIRSSON:
hóli í Ytraneshreppi í Snæfellsnessýslu 25. febr. 1866.
Foreldrar: Guðbrandur Guðbrandsson og Guðbjörg
Magnúsdóttir. Kom hinagð til lands árið 1905.
21. William Thorarinsson, í Winnipeg, Man. Fæddur a
Húsavík 10. febr. 1872. Fluttist 12 ára að aldri vestur
um haf með foreldrum sínum.
21. Sigríður Hall, ekkja Jónasar Hallgrimsson Hall, að
heimili sínu í grend við Garðar, N. Dak. Fædd á
Hóli í Köldukinn í Þingeyjarsýslu 2. nóv. 1852. For-
eldrar: Kristján Árnason og Bóthildur Grímsdóttir.
Kom til Vesturheims með manni sinum (d. 1931) árið
1874. Meðal barna þeirra er Steingrímur píanó-
kennari og tónskáld í Wynyard, Sask.
23. Kristíana Sigríður Helgadóttir Einarsson, að heimili
systur sinnar, Þóru Paulson, í Vancouver, B. C. Fædd
að Vatnsenda í Eyjafirði 16. sept. 1869. Fluttist vest-
ur um haf með foreldrum sínum 1876. Kristín og
maður hennar, Jón Einarsson (d. 1937) bjuggu við
Foam Lake, Sask., um 30 ára skeið.
23. Tryggvi Thorsteinsson, að heimili sínu við Tantallon,
Sask., 76 ára að aldri.
26. Guðrún Vigfúsdóttir Johnson, að heimili sínu að
Minnewakan, Man. Fædd á Flatey á Mýrum í Austur-
Skaftafellssýslu 24. maí 1864. Foreldrar: Vigfús Sig-
urðsson og Þórey Bjarnadóttir, ættuð úr Vestur-
Skaftafellssýslu. Kom hingað til lands árið 1892.
OKTÓBER 1940
7. Pétur Kristjánsson, að heimili sínu í Victoría, B. C.
Fæddur að Skaflakoti í Staðarstaðar-prestakalli í
Snæfellsnessýslu 11. ágúst 1860. Pétur og kona hans
Kristín Ólína Guðmundsdóttir, er lifir hann, komu
vestur um haf fyrir 55 árum síðan og hafa búið í
Victoria yfir 50 ár.
7. Sigurbjörg Guðmundsdóttir Henry, að heimili tengda-
sonar síns og dóttur, J. Johnson og konu hans, í Van-
couver, B. C. Fædd 12. apríl 1851 að Steinsstöðum í
Blönduhlíð í Skagafirði. Foreldrar: Guðmundur Jóns-
son og Sigríður Árnadóttir. Kom til Vesturheims
árið 1883.
11. Carl J. Anderson frá Winnipeg, fyrrum póstþjónn, á
sjúkrahúsinu á Gimli, 66 ára að aldri. Ættaður úr
Borgarfirði eystra.