Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1945, Blaðsíða 48
48
ÓLAFUR S. THORGEIRSSON:
Mass. hjá móður sinni Hólmfríði, þangað til hún kom
vestur til Minneota í des. 1907. Þá giftust þau. Magnús
varð fyrst kennari í íslensku við Gustavus Adolphus í
Minnesota, en síðar varð hann umboðsmaður jarða hjá
námufélagi í Virginia, Minn. og þar eru þau hjón enn.
Börn þeirra Magnúsar og Ásthildar eru: Eiríkur (f.
1908), Ólafur (f. 1915) og Ragnhildur (f. 1916), öll hin
mannvænlegustu.
Eiríkur er kvæntur og á tvö börn. Hann er flugmaður
og nú foringi (Lieutenant Senior Grade) í flugher Band-
aríkjanna.
Ólafur er eftirlitsmaður í flugvélaverksmiðju (Con-
solidated Aircraft).
Ragnhildur er matselja (dietic supervisor) í háskóla-
matsölunni í Knoxville, Tennessee.
VI.
Um 1890 fara stjórnarvöld í Canada að hlynna að
íslenskum útflutningi vestur um haf, og hefst þá tímabil
vesturfara-agentanna. Eimskipafélögin Allan, Dominion,
Anchor og Beaver line kepptust um að flytja Islendinga
vestur. 41)
Umboðsmaður Dominionlínunnar var Sveinn Brynj-
ólfsson, þá gestgjafi á Vopnafirði. Hann var fæddur á
Einarsstöðum í Stöðvarfirði 1856. Brynjólfur faðir hans
var Björgólfsson, Brynjólfssonar prests að Stöð, en kona
sr. Brynjólfs í Stöð var Rósa Nikulásdóttir, prests í Beru-
firði, systir Kristínar, konu sr. Brynjólfs í Eydölum, föður
dr. Gísla, og Rósu, móður dr. Jóns Bjarnasonar í Winni-
peg. 42) Móðir Sveins—seinni kona föður hans—var Sig-
urborg Stefánsdóttir timbursmiðs Bjarnasonar frá Snæ-
hvammi. Þau foreldrar Sveins fluttust til Breiðdals, þegar
hann var 10 ára gamall, og bjuggu lengst á Skjöldólfs-
stöðum; þar ólst Sveinn upp. Hann fór til Reykjavíkur
41) ÞÞÞ. I, 155. 42) Óðinn 1912, VIII, 25.