Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1945, Page 89
HELZTU VIÐBURÐIR
meðal Islendinga í Vesturheimi.
- 1944 -
I. jan,—Sæmdi Bretakonungur tvo Vestur-lslendinga
heiðursmerkjum; hlaut Stefán Helgason, liðsforingi í can-
adiska sjóliðinu, heiðursmerkið “Order of the British
Empire”, en Hjálmar Ragnar Björnsson (í brezka sjóhern-
um og búsettur í Englandi) heiðursmerkið “The British
Empii-e Medal”.
Jan.—Hlaut Mrs. Steinunn S. Eyjólfsson, Arborg,
Man., fyrstu verðlaun, annað ár samfleytt, fyrir hunangs-
gerð, í árlegri samkeppni þar í fylkinu.
6.—Átti skáldkonan Guðrún H. Finnsdóttir (Mrs. Gísli
Jónsson) sextugsafmæli. Hefir hún með ágætum smásög-
um sínum unnið sér verðugt viðurkenningarorð bæði
vestan hafs og austan, og einnig tekið mikinn þátt í vest-
ur íslenzkum menningar- og félagsmálum.
II. febr.—Stofnað Islendingafélag í Fargo, N. Dakota,
og Moorehead, Minnesota. Þessir voru kosnir embættis-
menn: Sig. Bjönisson, kaupsýslumaður, forseti; prófessor
T. W. Thordarson, vara-forseti; Mrs. N. B. Johnson, rit-
ari, og Mrs. B. K. Björnsson, féhirðir.
21.-23. febr.—Aldarfjórðungsafmælis Þjóðræknisfélags
Islendinga í Vesturheimi minnst með veglegum hátíða-
höldum í sambandi við 25. ársþing þess. Sat herra Sigur-
geir Sigurðsson, biskupinn yfú- Islandi þingið sem fulltrúi
ríkisstjórnar Islands og flutti fagrar og bróðurlegar kveðj-
ur frá ríkisstjórn, íslenzku þjóðinni og fjölmörgum félög-
um á íslandi. Dr. Richard Beck var endurkosinn forseti
félagsins, og Gísli Jónsson prentsmiðjustjóri var einnig
endurkosinn ritstjóri Tímarits þess á fundi stjórnarnefnd-
ar laust eftir þingið.