Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1945, Blaðsíða 45
ALMANAK
45
Hildur fór með dóttur sína til Selkirk; þar dó hún, en
Ragnheiður giftist frænda sínum, Guðmundi Ásmunds-
syni úr Njarðvík; þau áttu fimm börn, en Elín dóttir þeirra
lifir ein þeirra. Aftur giftist Ragnheiður Halldóri Hall-
dórssyni frá Firði í Seyðisfirði, en hann dó í fyrra; síðan
er hún hjá Elíni dóttur sinni.
Sama árið og þær Anna og Hildur fóru vestur (1888)
hefur líka farið Eiríkur Þorsteinsson, fæddur í Eyjum
1875. Ekki veit eg um foreldra hans eða með hverjum
hann fór; hann kvæntist Antoníu Ingveldi Ólafsdóttur
(Oddssonar frá Kollaleiru) og bjuggu þau í Nýja Isl. 36)
V.
Fjögra manna skal hér getið, sem fóru úr Breiðdal
löngu áður en þeir lögðu leið sína vestur um haf.
Páll Jónsson var fæddur í Jórvík 1836. Foreldrar hans
voru Jón Jónsson bóndi þar og kona hans, Oddný Jóns-
dóttir. Páll bjó fyrst á Kolmúla, síðan í Tungu, Fáskrúðs-
firði. Þaðan fór hann vestur til Nýja Islands 1876; bjó þar
í Nýjabæ í fjögur ár. 1880 fór hann til Winnipeg, 1889
til Grunnavatnsbyggðar og þaðan 1890 til Eggerts J.
Oliver, tengdasonar síns í Argyle. 1900 fór hann til Ger-
ald, Sask. og þar dó hann.
Fyrri kona Páls var Vilborg Guðmundsdóttir Guðm-
undssonar bónda á Ósi í Breiðdal og Vík í Fáskrúðsfirði.
Böm: Marteinn og Páll (dó heima á Islandi).
Síðari kona Páls var Ólöf Níelsdóttir Níelssonar bónda
á Kirkjubóli, síðar í Tungu, Fáskrúðsfirði. Börn: Vilborg
Lovísa, (gift Eggert J. Oliver), Kristján, Oddný, Níels
Metúsalem, Jónína Pálína, Páll, Albert, Björn Metúsal-
em, og Kristín. 37)
Stefán Jóhannes Þorláksson er sagður fæddur 1846
og ættaður úr Breiðdal. Hann fór þaðan 1861 til Vest-
36) ThJ. Brot, 74.
37) ThJ. Framhald á landnámssögu Nýja Islands.