Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1945, Blaðsíða 24
24
ÓLAFUR S. THORGEIRSSON:
lands. Fór forsetakjörið á þann veg, að Sveinn Björnsson
ríkisstjóri var kosinn, og fagnaði hinn mikli mannfjöldi
þeim úrslitum hjartanlega. Eftir að hinn nýkjörni forseti
hafði unnið eið að stjórnarskránni, flutti hann faguryrt
og eggjandi ávarp, sem tekið var með dynjandi lófaklappi
mannfjöldans.
Að loknum þingfundinum hófst annar mikilvægur og
minnisstæður þáttur hátíðahaldsins að Lögbergi:— kveðj-
ur og árnaðaróskir sérstakra fulltrúa erlendra þjóða.
Kynnti Vilhjálmur Þór utanríkisráðherra fulltrúana, en
Forseti fslands þakkaði kveðjumar jafnharðan á því máli,
sem þær höfðu verið fluttar. Þjóðsöngur hverrar þjóðar
var einnig leikinn á eftir ræðum sendiherranna, en þeir
töluðu í eftirfarandi röð: sendiherra Bandaríkjanna,
sendiherra Bretlands, sendilierra Norðmanna, sendiherra
Svía og fulltrúi frönsku þjóðfrelsisnefndarinnar. Sendi-
herra Sovjetríkjanna var einnig viðstaddur hátíðahöldin.
Voru ræður hinna erlendu fulltrúa þrungnar hlýju og
virðingar í garð hinnar íslenzku þjóðar, og jafnhliða fögur
viðurkenning hlutaðeigandi þjóða á hlutdeild fslands í
heimsmenningunni og rétti þess til fulls sjálfsforræðis,
enda var þeim tekið með hrifningu og fögnuði af hinum
fjölmenna tilheyrendahóp, er hylti sendiherrana ákaft,
en þó sér í lagi norska og sænska sendiherrann, sem báðir
mæltu á íslenzka tungu.
Auk þeirra kveðja og heillaóska, sem erlendir fulltrú-
ar fluttu að Lögbergi, bárust Forseta fslands og ríkistjórn-
inni kveðjur og velfarnaðaróskh- frá þjóðhöfðingjum og
ríkisstjórnum viðsvegar um lönd, og mikill fjöldi annara
heillaóskaskeyta frá erlendum og íslenzkum mönnum og
félögum utanlands. Létu margir í hópi Vestur-íslendmga
og ýms félög þeirra ræktarhug sinn til ættþjóðarinnar
einnig í Ijósi með þeim hætti.
Lauk hátíðahöldunum að Lögbergi með kveðjuflutn-
ingi hinna erlendu fulltrúa, og höfðu þau um allt verið