Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1945, Blaðsíða 22
22
ÓLAFUR S. THORGEIRSSON:
ræðum og drengilegum og í snjöllum og hjartaheitum
fagnaðarljóðum.
Á fslandi var þessa langþráða og einstæða atburðar
í sögu þjóðarinnar minnst með veglegum og fjölþættum
hátíðahöldum um landið allt. Aðalhátíðin var haldin að
Þingvöllum og í Reykjavík þ. 17 og 18. júní, að viðstödd-
um geysimiklum mannfjölda á báðum stöðum, og er
talið, að 25—30 þúsundir manna hafi verið saman komnir
á Þingvöllum, þá er flest var. Blasti þar við sjónum ó
Völlunum tjaldborg mikil, og var hún tilkomumikil til
að sjá með svipmikið landslagið í baksýn.
Þingvellir við Öxará, þessi fornhelgi þingstaður þjóð-
arinnar, þar sem gerst hafa flestir örlagaríkustu atburð-
irnir í sögu hennar og þar sem heyra má, eins og skáldið
komst að orði, þúsund ár þjóðarinnar “sem þyt í laufi á
sumarkveldi hljóðu”, urðu nú um stund, eins og áður
öldum saman, höfuðstaður og hjartastaður íslenzks þjóðlífs.
Þangað lögðu nú þúsundir fslendinga leið sína fagnandi
huga, en hinir voru þó miklu fleiri, landar þeirra beggja
megin hafsins, sem urðu að láta sér nægja að vera þar í
anda á langdreymdri óskastund þjóðar sinnar. En hinn
söguríka sigurdag 17. júní síðastliðinn rættust áreiðanlega
orð skáldsins úr lofsöng hans til Fjallkonunnar Alþingis-
hátíðarsumarið 1930: “Við Lögberg mætast hugir barna
þinna.”
Ljómi sögunnar sveipaði einnig daginn sjálfan, sem
réttilega hafði verið til þess valinn að verða upprisudagur
hins íslenzka lýðveldis, fæðingardagur Jóns Sigurðssonar
forseta. Með þeim hætti vottaði þjóð hans honurn verðugt
þakklæti fyrir forustuna ómetanlegu í sjálfstæðisbaráttu
hennar og sýndi minningu hans tilhlýðilega virðingu.
Lýðveldishátíðin hófst einnig með því að morgni hins
17. júní, að forseti sameinaðs Alþingis, Gísli Sveinsson
sýslumaður, minntist Jóns forseta í ræðu og lagði fagran
blómsveig á fótstall líkneskis hans á Austurvelli í Reykja-