Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1945, Blaðsíða 54
54
ÓLAFUR S. THORGEIRSSON:
Mér fannst ómissandi, að einhver grein væri gerð fyrir
Breiðdælum vestan hafs, og ekki óeðlilegt, að eg gerði
eitthvað í því máli, þar sem eg er þeim megin hafsins
sjálfur. En sá var ljóður á rnínu ráði, að eg hef raunar
verið eins fjarri Breiðdælum vestan hafs eins og þeim,
sem austan hafs hafa búið, því þótt margir þeirra sé
frændur mínir, eins og þeim mun ljóst, er lesa ofanskráð-
ar línur, þá voru þeir nálega allir komnir vestur löngu
fyrir mitt minni. Hóseasarfólkið er það eina, sem eg man
nokkuð eftir, og var eg þó ekki nema sex ára, er það fór
vestur.
Eg réð það þó af að taka saman þetta yfirlit, hugs-
andi, að betra væri að veifa röngu tré en öngu. Hafði eg
ætlað að biðja annaðhvort blaðið eða bæði að birta það,
í þeim vændum, að þeir Breiðdælir, sem búsettir eru
vestra, vildu nú gera svo vel og skrifa mér leiðréttingar
og viðauka; því hér, sem ávalt, er hollast að hafa það,
sem sannara reynist. Af hendingu komst Richard Beck,
vinur minn, að því, að eg hafði grein þessa á prjónunum,
og lagði hann þá að mér að láta sig hafa hana í Almanak
ÓSTh. Sagði eg honum sem var, að eg hefði ætlað henni
að koma í blöðunum og að hún mundi heldur ófullkomin
fyrir Almanakið. En hann lét sér ekki segjast, og fyrir
því birtist greinin nú hér.
Af prentuðum heimildum hef eg haft:
Almanök Ólafs S. Thorgeirssonar: ÓSTh.
Thorleifur Jackson: Brot af landnámssögu Nýja Islands:
ThJ. Brot.
Sami: Frá austri til vesturs.
Sami: Framhald á landnámssögu Nýja Islands.
Thorstína Jackson: Saga Isl. í N. Dakota: ThJ. SNDak.
Þorsteinn Þ. Þorsteinsson: Saga Islendinga í Vesturheimi
I—II: ÞÞÞ. I—II.
Af óprentuðum heimildum hef eg haft “Yfirlit yfir
bændur og búalið í Breiðdal” eftir Bjöm Björnsson frá