Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1945, Blaðsíða 79
ALMANAK
79
styrkja vináttuböndin milli íslands og Bandaríkjanna og
minntist þess hversu margir menn af íslenzkum stofni
hefðu reynst nýtir og merkir borgarar í landi þar. Fors-
eti Islands þakkaði á-
varp utanríkisráðherrans
með fögrum orðum og
lét í ljósi þá skoðun, að
vinsamleg samskifti Is-
lands og Bandaríkjanna,
hins minsta og hins stær-
sta lýðveldis heimsins,
væri fordæmi og fyrir-
heit um batnandi sam-
starf allra þjóða.
Síðar um daginn hafði
forseti íslands móttöku-
samkvæmi fyrir sendi-
herra og aðra fulltrúa
erlendra ríkja í Wash-
ington, en um kvöldið
höfðu sendihrerra Is-
lands og ffú Ágústa
Thors veizlu fyrir 'fors-
eta, utanríkisráðherra,
foruneyti þeirra og starfsfólk sendiráðsins.
Eftir að hádegisverður hafði verið snæddur á sunnu-
daginn þ. 27. ágúst, og Adolf A. Berle vara-utanríkisráð-
herra hafði kvatt forseta Islands af hálfu Bandaríkja-
stjórnar á flugvellinum, var stigið í flugvél þá, er flytja
skyldi forseta, utanríkisráðherra og föruneyti þeirra til
New York, en með í förinni, auk fulltrúa utanríkisráð-
uneytis Bandaríkjanna, hers og flota, voru þau Thor
Thors sendiherra og frú, ungfrú Elisabet Sv. Björnsson,
dóttir forseta, og dr. Edward Thorlakson, fréttamaður
upplýsingaskrifstofu Bandaríkjanna.
dr. Helgi P. Bríem