Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1945, Blaðsíða 75
HEIMSÓKN FORSETA ÍSLANDS
TIL BANDARÍKJANNA
Eftir Richard Beck
íslendingum vestan hafs var það að vonum mikið
fagnaðarefni, þegar það fréttist, að forseti Islands, herra
Sveinn Björnsson, ásamt með herra Vilhjálmi Þór utan-
ríkisráðherra, væri væntanlegur vestur um haf, í boði
forseta og ríkisstjórnar Bandaríkjanna. Var þar um að
ræða mikinn vináttu- og virðingarvott í garð hinnar ísl-
enzku þjóðar, en Vestur-lslendingar eru ennþá tengdir
stofnþjóðinni svo nánum böndum ættar og erfða — og
þannig mún enn lengi verða—að þeir finna glöggt til þess
að sómi hennar er sómi þeirra. Fylgdust þeir því af ein-
lægum ræktarhug með öllu því, sem gerðist í sögulegri
vesturför þessara ágætu fulltrúa íslenzku þjóðarinnar.
Lögðu þeir forseti Islands og untaríkisráðherra af
stað frá Islandi stuttu fyrir hádegi miðvikudaginn 23.
ágúst í flugferðina til Bandaríkjanna, en í för með þeim
voru Pétur Eggerz forsetaritari, Bjarni Guðmundsson
blaðafulltrúi untanríkisráðuneytisins og Jakob Jónsson
lögregluþjónn í Reykjavík.
Eftir næturdvöl á norðlægum flugvelli í Ameríku var
haldið snemma næsta dags áleiðis til Washington og lent
á flugvelli borgarinnar síðdegis á áætluðum tíma.
Á flugvellinum buðu þeir Edward Stettinius Jr., vara-
utanríkisráðherra (nú utanríkisráðherra) Bandaríkjanna
og Adolf A. Berle, aðstoðarutanríkisráðherra, forseta ts-
lands og utanríkisráðherra velkomna, að viðstöddum dr.
Thor Thors, sendiherra Islands í Washington, sendiráðs-
riturum hans, forstjórum ýmsra deilda í untanríkisráð-