Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1945, Blaðsíða 91
ALMANAK
91
Thorlakson, vára-ræðismaður.
Apríl—Snemma í þeim mánuði tilkynnt, að séra Philip
M. Pétursson, prestur Sambandskirkjunnar í Winnipeg,
hefði verið skipaður útbreiðslustjóri Ameriska Únitara-
félagsins (American Unitarian Association) á starfssvæði
kirkjufélags síns, en séra Guðmundur Árnason hafði áður
haft það starf með höndum.
Apríl—Um þær mundir var W. j. Lindal, K. C., dómari
í héraðsrétti Manitobafylkis, kvaddur til að taka sæti í
lands (alþjóðar) nefnd þeirri, er hafði með höndum undir-
búning sjötta sigurlánsins í Canada.
Apríl—Kunngert, að ríkisstjórn Islands hefði boðið
Þjóðræknisfélaginu að velja fulltrúa fyrir Vestur-lslend-
inga til þess að vera gestur ríkisins á lýðveldishátíðinni
þ. 17. júní, og að stjórnarnefnd félagsins hefði kjörið
forseta þess, dr. Richard Beck, til þeirrar farar. Flutti
hann kveðjur Islendinga vestan hafs á hátíðinni að Þing-
völlum og síðan ræður á samkomum víðsvegar um landið,
og átti hvarvetna hinum ágætustu viðtökum að fagna.
Apríl—I þeim mánuði var Hjálmar A. Bergmann, K.
C., dómari í yfirrétti Manitoba, kosinn forseti háskóla-
ráðsins þar í fylkinu, en hann hafði undanfarið skipað
sess vara-forseta.
Maí—Victor B. Anderson, bæjarfulltrúi í Winnipeg,
endurkosinn forseti prentarasamtakanna þar í borg.
12. maí—Sæmdi Manitoba-háskóli dr. B. J. Brandson
heiðursdoktors-nafnbót í Lögum (LL.D.), og hlaut hann
fyrstu manna af íslenzkum stofni, búsettum í Canada, þá
heiðursnafnbót frá canadiskum háskóla.
12. maí—Útskrifuðust eftirfarandi íslenzkir nemendur
af Manitoba-háskóla:
Bachelor of Arts:
Haraldur Victor Vídal (einnig Diploma in Edu-
cation).
Doctor of Medicine:
Eggert Thomas Feldsted.