Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1945, Blaðsíða 94
94
ÓLAFUR S. THORGEIRSSON:
og Churchbridge í Sask., Berkeley og Los Angeles í Cal.,
Blaine, Wash., Mountain, N. Dak., New York, Washing-
ton, D. C., Chicago og Minneapolis. Islendingadagar
þeir , sem haldnir voru síðar á sumrinu, í Blaine, 30. júlí,
Seattle, 6. ágúst og að Gimli, 7. ágúst, voru einnig helg-
aðir lýðveldisstofnuninni.
Einnig var Lýðveldisstofnunarinnar minnst með sér-
stöku útvarpi frá Winnipeg yfir canadiska ríkisútvarpið
frá hafi til hafs, og var þáttur þess ávarp, er forsætisráð-
herra Canada flutti, og með útvarpi yfir stöðvakerfið i
Norður-Dakota og einnig með útvarpi frá Minneapolis.
16.-20. júní—Sextugasta ársþing Hins Evang. Lúterska
kirkjufélags Isl. í Vesturheimi haldið að Glenboro, Man.
Dr. Haraldur Sigmar var endurkosinn forseti.
Við hátíðlega guðsþjónustu þ. 18. júní var Skúli Sig-
urgeirsson (sonur Jakobs Sigurgeirsson og Viktoríu konu
hans í Mikley, Man.) vígður prestur til Gimli prestakalls;
hafði hann þ. 23, maí lokið embættisprófi við lútersk.a
prestaskólann í Saskatoon, Sask., með ágætum vitnisburði
Júní—Veitti ríkisháskólinn í Minnesota (University of
Minnesota) Mrs. Thorstínu Jackson Walters ritstyrk
(fellowship) til þess að safna til og semja á ensku sögu
íslendinga í norðvestur hluta Bandaríkjanna, sem gefin
verður síðan út á kostnað háskólans. Hefir hún áður ritað
á íslenzku sögu Islendinga í Norður-Dakota og fjölda
greina á ensku um íslenzk efni, sem birst hafa í amerísk-
um blöðum og tímaritum.
23.-25. júní—Haldið í Winnipeg 22. ársþing Hins sam-
einaða kirkjufélags Isl. í Vesturheimi. Hannes Pétursson
var endurkosinn forseti. — Samtímis (24.-25. júní) var
haldið ársþing Sambands kvenfélaga kirkjufélagsins. Mrs.
E. J. Melan kosin forseti í stað Mrs. E. S. Björnsson, er
gengt hafði því embætti samfleytt í sxtán ár.
25. júní—Minnst hálfrar aldar afmælis Péturssafnaðar
að Svold í Norður-Dakota með virðulegum hátíðahöld-