Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1945, Side 27
1
BREIÐDÆLIR FYRIR VESTAN HAF.
Eftir prófessor Stefán Einarsson.
I.
Ekki vita menn, hvenær flugu vesturfaranna hefur
fyrst verið komið í munn Breiðdælum.
Líklegt er þó, að það hafi ekki verið fyrr en vorið
1873, þegar þeir Eggert Gunnarsson og Þorlákur frá
Stóru-Tjörnum fóru þar um í þeim erindagerðum að ráða
menn til ferðar vestur um haf með skipi því, sem Guð-
mundur kaupmaður Lambertson í Reykjavík ætlaði að
senda eftir þeim þá um sumarið. 1)
Þeir félagar komu 26. apríl sunnan yfir Berufjarðar-
skarð og gistu að Höskuldstöðum hjá Einari bónda Gísl-
asyni. Höfðu þeir komið frá Berufirði og fóru daginn eftir
að Hallormstað, svo að ekki varð viðdvöl þeirra löng í
Breiðdal. )2 Ekki er þess getið, að þeir hafi boðað fund,
en orðum hafa þeir hlotið að koma um sveitina, því að
þar skrifuðu sig á lista þeirra tveir ungir menn: Ámi
Jónsson á Skriðustekk, sonur Jóns í Fagradal, og Snorri
Högnason á Brekkuborg. Skuldbundu þeir sig til farar-
innar “svo framarlega sem skipið tæki sig á Eskifirði eða
Seyðisfirði og flutningskaupið yrði hið sama og fyrir
Norðlendinga og Sunnlendinga.” Skipið var væntanlegt
í júní til Akureyrar, en kom ekki fyrr en í ágúst, og gat,
þegar til kom, ekki tekið alla þá, sem þar voru komnir,
hvað þá menn austur á fjörðum. 3)
Þorsteinn Þorsteinsson getur þeirra heldur ekki, svo
eg hafi getað fundið, í skrá þeirra manna, er fóm með
því skipi.
1) ÞÞÞ. II, 134 o.n. 2) ÞÞÞ. II, 140-42. 3) ÞÞÞ. II, 159.