Afturelding - 01.06.1967, Qupperneq 50

Afturelding - 01.06.1967, Qupperneq 50
Frá mótinu í Kirkjulœkjarkoti Þá eru hinir yndislegu mótsdagar að baki, sem við áttum í Kirkjulækjarkoti á þessu sumri. En áhrif þeirra lifa í hjörtum margra, trúi ég. Mótið stóð yfir dagana 5.—7. ágúst. Samkomur voru tvær á laugardag, fjórar á sunnudag og tvær á mánu- dag, átta samkomur alls. Á þessum stundum var áherzla lögð á þann biblíulega sannleika, að helg- ast Drottni og „helga Krist, sem Drottin í hjört- um vorum“. „Því að án helgunar fær enginn Drottin litið“, segir Guðs orð. (Hebr. 12,14). Einnig var sýnt fram á þýðingu þess, verðmæti og ábyrgð, að tilheyra staðbundnum söfnuði Krists. Þar eiga allir að lúta einum vilja, einu höfði — Kristi Jesú. Einnig var áherzla lögð á það mikil- væga atriði, að vera verkmaður Drottins og ávinna menn fyrir Krist. Auk þessa var mikið beðið fyrir landi og þjóð og kristninni í heild. Því að Kristur Jesús er einasta lausn vandamálanna í dag, bæði fyrir einstaklinginn og þjóðarheildina. Þarna var fjölmennur hópur æskufólks saman kominn á mótinu. Einhver hin fegursta sýn, sem ég hef séð, var að sjá rúm 30 ungmenni á knján- um í bæn til skapara síns og frelsara, biðjandi um blessun hans og kraft til þess að lifa hreinu og sigrandi lífi í heimi þessum. Þetta var önnur og fegurri sjón en sumir litu um sömu helgi (verzlun- armannahelgina) t.d. í Þórsmörk. Það var mannmargt í Kirkjulækjarkoti um þessa helgi. Yfir þrjátíu tjöld voru reist á nýhirtu tún- inu. Það var falleg tjaldborg í Hliðinni fögru. Líkt og forðum, er Drottinn birtist Abraham, er hann sat í tjalddyrum sínum (1. Mós. 18,1), birt- ist Drottinn nú og blessaði tjaldbúa þessa, er sungu lofgerðar- og þakkaróð Drottni til dýrðar. Það var áreiðanlega löngun allra að feta í fótspor þeirrar trúar, er faðir vor Abraham átti. Á þessu blessaða móti létu sálir frelsast, og Guðs börn hlutu endurnýjun í Heilögum Anda. Guði séu þakkir fyrir þessa góðu daga í for- görðum Drottins, því að einn dagur í forgörðum Drottins er betri en þúsund aðrir, segir konungur- inn og sálmaskáldið Davíð. (Sálmur 84). Já, það er gott að dvelja í nálægð Drottins. Að endingu þetta. Guð blessi alla vinina í Kirkju- lækjarkoti og störf þeirra í víngarði Drottins. — Beztu þakkir til þeirra, og ykkar allra, sem mótið sóttuð. Guð blessi ykkur öll og starfið alls staðar í landinu. Kjörorðið er: ísland fyrir Krist. Jóhann Pálsson. Gjafir og áheit til Fíladelfíusafnaðarins í Reykjavík. Frá síðastliðnum áramótum. N.N. kr. 500, Kona 500, Ónafngreind kona 400, Kona, sem elskar hljóm- list 200, S.F. 100, N.N. 20.000, Þ.H. Rvík 500, Á.J. 1000, N.N. 100, V.B. 300, Nokkrir vinir 6000, l.J. 500, N.N. 100, N.N. Strandasýslu 2000, G.L. 3000, L.L. 300, N.N. 200, N.N. 200, IJ.B. 200, R.L. 5000, N.N. 2000, N.N. 100, Þ.H. 500, N.N. 100, Þ.J. 1000, A.E. 2000, A.M. 400, A.B. 1000, R. 100, N.N. 500, N.N. 100, K.B. 11000, I.J. 1000, A.E. 1000, N.N. 70.000. BiblíuorðiS blessar hjartað. Því að svo elHkaði Guð heiminn, að hann gai' son sinn eingetinn, til þess að hver, sem ii liann trúir, giatist ekki, heldur hafi cilíft líf. Því að ckki scndi Guð soninn í hcfminn, til þess að hann skyldi dœma heiminn, heldur til þess að heimurinn skyldi frelsast fyrir hann. Sá sem trúir ú hann, dæmist ekki, sá sem ekki trúir, er þegar dæmdur, því að hann hefur ekki trúað á nafn guðssonarins eingetna. — Jóh. 8, 16—18. 50

x

Afturelding

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Afturelding
https://timarit.is/publication/406

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.