Muninn

Årgang

Muninn - 01.04.1958, Side 42

Muninn - 01.04.1958, Side 42
til að varpa fram einni spurningu. Hve lengi á að bíða eftir því, að stúdentar úr hinum ágætu menntaskólum þjóðarinnar standi í forystu atvinnubaráttunnar, að þeir verði miklir kaupsýsluhöldar, kaupfélaga- leiðtogar, skipstjórar, bændur og fram- kvæmdastjórar mikilla atvinnufyrirtækja o. s. frv.? — Það er auðvelt fyrir landið að fá góða og menntaða embættismenn og fræðimenn, en þar er ekki, eins og málum er nú komið, nægilegt verkefni fyrir 200 stúdenta, senr nú ganga fram á leikvöllinn ár hvert. En það, sem hér er vangert, bíður hinna ungu manna, líka þeirra, sem njóta nú prýðilegrar aðstöðu til nárns fyrir at- beina Arnljóts Ólafssonar og eftirmanna Iians í endurreisnarmálum Hólaskóla. Hvað segið þér um landsprófið? Það er slæm uppfinning, sem er ekki hægt að gefa nægilega skýringu á í stuttu máli. Ég hef hug á að ræða það mál síðar í útvarpi. Hvernig lízt yður á að færa sunnlenzka menntaskólann frá Laugarvatni að Skál- holti? Auðvitað er Skálholt mjög góður skóla- staður frá náttúrunnar hendi. Þar er jarð- hiti í landareigninni og mikil náttúrufeg- urð, en staðurinn hefur verið gleymdur og illa með farinn í 150 ár, og þegar umtal byrjaði á Suðurlandi um sunnlenzka skóla, minntist enginn á Skálholt, áhuginn beind- ist að Laugarvatni. Þar kom héraðsskóli, kvennaskóli, íþróttaskóli og síðast mennta- skóli. Þann skóla skortir að vísu nokkurn húsakost, en þar eru 100 nemendur og all- mikið kennaralið. Það var enginn áhugi fyrir Skálholti, meðan menntaskólahug- myndin var að ryðja sér til rúms sunnan- lands. Menntaskólinn óx upp í skjóli Hér- aðsskólans að Laugarvatni, alveg eins og Menntaskólinn á Akureyri var óframkvæm- anleg draumsýn nema í skjóli Möðruvalla- skóla. í Skálholti kemur væntanlega bisk- upssetur og prestaskóli, og þá er kröfum sögunnar fullnægt. Hvað segið þér um blaðaútgáfu í skóla? Skólablöð eru lífsmerki. Ef ungmenni í skólum halda ekki málfundi og hafa ekki með sér félagsleg áhugamál og æfa ritleikni, þá er slík stofnun varla á vetur setjandi. Frá Möðruvallaskóla komu margir vel ritfærir menn og nokkur skáld. Ég vona, að ykkar skóli verði líka sigursæll á þeirri braut. Vil ég svo að síðustu biðja ykkur að bera kenn- urum ykkar og skólasystkinum kveðju mína og heillaóskir og þar með þá tillögu, að þið hættið að kalla ykkur menutskælinga, því að nokkur ástæða væri til að leita álits smekkgóðra manna á íslenzkt mál um það, hvort þetta orð sé boðlegt stofnun, sem þjóðin hefur unnið mikið til að koma á fót og líkar vel við, nema að því er snertir þetta heiti, sem mun hafa verið fundið upp af gráglettnum púka í undirheimum. Og varla mundi Eyfirðingurinn Jónas Hallgrímsson liafa valið mestu menntastofnun héraðsins þetta gælunafn. Muninn þakkar Jónasi Jónssyni frá Hriflu góðar móttökur 02: greið svör. O 00 Þ. S. og H. B. STALDRAÐ VIÐ í PRENTSMIÐJUNNI (Framhald af bls. 78.) og nemenda að fornu og nýju, lífs og lið- inna. Og að lokum þetta: Sækið fast inn í framtíð bjarta! Leitið lista, ljóðs og sagna í ljóssins heimi. Lifið heil!“ Klukkan hafði ekki svikizt undan merkj- um, og varð ég að hafa hraðann á til að ná í stélfjaðrirnar á Erni, áður en hann lokaði. 82 MUNINN

x

Muninn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Muninn
https://timarit.is/publication/429

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.