Heimir - 01.07.1910, Blaðsíða 14
254 HEIMIR
ans, Merry del Val kardínáli, blandaöi sér inu í niáliö meS því
að setja sig upp á móti valiportúgískustjórnarinnará sendiherra
til Vatikansins. Stjórnin lét í ljósi óánægju sína útaf afskifturn
kardínálans með því að kunngera, að hún mundi engan sendi-
herra skipa. Síðan hafa klerkar í Portúgal byrjað að vinna á
móti stjórninni, og er ekki ólíklegt að í framtíðinni veröi ein-
hver breyting á samkomulagi portúgísku stjórnarinnar og kaþól-
sku kyrkjunnar.
Á kyrkjuþingi meþódista í Kanada, sem haldiö er í Victoria
13. C. um þessar mundir hefir mikið veriö rætt, hvað kenna megi
með tilliti til guðfræði í skólum meþódista kyrkjunnar. Eftir
því sem blöðin segja frá, skiftast menn þar í þrjá flokka. Nokk-
rir halda fram að ekki megi víkja frá viðteknum kenningum, og
að þeir kennarar, sem ekki geta fylgt þeim eigi að hætta að
kenna í meþódista skólum. Aðrir vilja láta taka nýja afstöðu
og útskýra hinn "gamla sannleik", eins og þeir komast að orði,
samkvæmt þekkingarástandi nútímans. Hinir þriöju vilja láta
kennarana hafa alveg óbundnar hendur og kenna það sem þeir
vita að er sannast og réttast. Afstaða þessa þriðja flokks er
gleöilegur vottur um frjálslyndi og viðsýni innan meþódista
kyrkjunnar; en því miður virðist sá flokkur ekki mega sín mjög
mikils ennþá. Efalaust verður það samt hans stefna, sem sigrar
á endanum.
Orðskviðirnir.
Eins og næfri má geta hefir herleiðingin til Babýlon haft
afarmikil áhrif á alt þjóðlíf Gyðinga. Að vísu er alveg óvíst
hvort þeir, sem herleiddir voru hafa komið allir heim afturþegar
Babýloníu ríki féll og tekið við stjórn allri á Gyðingalandi undir
yfirráðum hinna nýju drotna sinna. Hitt erlíklegra að margir