Heimir - 01.07.1910, Qupperneq 11
<
X IIM I 3 H
Kanada.
ANNAN ÁGÚST I9IO.
Þá aörar þjóöir ákaft deila,—
uni elzta sögu, fegurst mál,
um jaröeign sína, hálfa og heila,
um hreysti, kyrkjur, blý og stál,—
þú býöur friöinn, fóstra unga,
og faömínn breiöir móti þeim,
sem vilja létta lífsins þunga
og lúnir flýja Austur-heim.
Og hvaö sem þeim til hugar rennur,
er hrekst frá sinni æskulaut,
og hve sem þeim í hjarta brennur,
er hatar þann sem flytur braut;
þá er þaö víst aö frelsi og friður
þann fanga, er mannlegt hjarta á :
Aö heita eigin heillasmiöur
er huggun gamals, unglings þrá.
Hiö fyrsta spor, sem fram er gengið
á friöarvegi, á gæfuleiö,
þaö vinnst viö andlegt frelsi fengiö
og fetist þaö er brautin greiö;—
og þú varst, fóstra, aflið eina,
sem okkur hugsjón vaktir hjá,
því ótta-stýrur myrkra og meina
Þín móöurhönd oss strauk af brá.