Heimir - 01.07.1910, Blaðsíða 30

Heimir - 01.07.1910, Blaðsíða 30
270 H E I M I R guðlegra áhrifa og stjórnar átt sér stað á hinn sama náttúrlega hátt? Það er fyrsti vitnisburðurallratrúarbragða að veruleg hjálp og gæði frá hinu guðlega, komi í ríkum mælitil allra þeirra sem leita, — ti! hinna snauðu, fáfróðu, sjúku, sorgbitnu og syndugu. En hvernig vitum vér þetta, hvernig vitum vér að bæn mannsins er svarað? Af reynzlunni. Vér vitum að trúin veitir oss hjálp eins áreiðanlega og vér vitum, að þegar vér göngum til uppsprettunnar, þá getum vér fylt fötu með vatni. Þeirsem eru einlæglega trúaðir hafa þá meðvitund að sér veitist hið góöa einhvern vegin sem svar við bæn sinni. En vér verðum að muna, að trúarleg reynzla getur ekki gefið oss skýlausan sann- leika, aðeins skynsemin getur gert það. Trúarleg reynzla getur ekki gefið oss skýlausan sannleika um heiminn, manninn ogguð. Rannsókn, vísindi eða heimspeki verða að gera það, en trúin getur sýnt oss veginn til hins góða og hjálpræðisins. I þessari reynzlu virðist sem veggnum, er aðskilur hið mannlega og guð- lega, sé sópað í burtu og að flóðalda komi inn, sem fyllir sálina með nýju ljósi, nýrri viðkvæmr.i og nýju hugrekki. Þessa fyll- ing sá'.arinnar nefnum vér komu hinsguðlega, án þess að þykjast þekkja guð nákvæmlega. Meira að segja, það er ekki ávalt nauðsynlegt að trúa á guð til að finna veginn til guðs. Vér vitum aðeins að það er uppörfun í þessari snertingu, áhrif, sem jafnvel þegar vér þreifum fyrir oss í myrkri undir yfir- boröi mannlífsins, gefa oss ljós, kraft og einlægni framar öllu öðru, þegar verk og skylda eru fyrir höndum. I þessari reynzlu er engin lítilsvirðing ytri gæða. Heilsa, fegurð, kunnátta, kraftar, jafnvel fé og staða eru stundum ómet- anleg gæði. En maður getur haft alt þetta og verið óhamingju- samur, tnann getur skort það alt og verið hamingjusamur, því til þess sem leitar kemur það sem hinn sanntrúaöi maður kallar áhrif hins guðlega, kraftur, setn er meiri en hann sjálfur, sem breytir eyðimörk hans í garð skreyttan fögrum blómutn. Engin sorg, enginn missir mun verða honum óbætanlegur; hrygð hans getui verið eins og svartnættið, sem hylur hann, en út við sjón- deildarhringinn skín stjarna vonarinnar.

x

Heimir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimir
https://timarit.is/publication/440

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.