Heimir - 01.07.1910, Side 33

Heimir - 01.07.1910, Side 33
HEIMIR 2 73 Dómarabókin. Allar þjóöir eiga sínar hetjusagnir, sem myndast á meöan þjóðlífiö er aö komast á fastan grundvöll. Þessar sagnir skj'ra frá afreksverkum manna. er hafa leitt þjóöina á ófriöartímum, eöa á einhvern annan hátt hafa áuniö sér lof ogaödáun almenn- ings. Utan uin endurminningarnar um þessa menn fléttast ótal sagnir, suinar sannar, aörar bygöar á ímyndun einni; þær ganga fyrst munnmælum um lengri eöa skemri tíina, svo er eitthvaö af þeiin fært í letur, þaö varöveitist en hitt gleymist meö tímanum. Dómarabókin í Gamlatestamentinu er safn af hetjusögum, sem ná lengst aftur í fornöld Gyöingajijóöarinnar. Aöal persórian í hverri sögu er einhver hetja, sem á ófriðartímum geröist leiö- togi yfir ættbálki sínum og vann sigur á óvinunum. Viöburöir- nir, sem sögurnar skýra frá snerta aö nrestu leyti aöeins þann ættbálk, sem söguhetjan tilheyrir, en þeir, sem síðar söfnuöu sögunum saman hafa gert sér far um aö gefa viðburöunum' víö- tækari þýðingu. Hvenær sögum þessum var fyrst safnað sarnan í eina bók veröur ekki sagt meö vissu. I sinni núverandi nrynd ber dónr- arabókin meö sér, aö hún hefir gengiö í gegnum hendurnar á fleirum en einurn útgefanda. Allir þessir útgefendur hafa bætt sínum eigin skoöunum við hiö upprunalega efni, í smágreinum, sem skotiö er inn á milli sagnanna. Sterkasti þátturinn í þess- um viðbætum eru hinar svo nefndu deuteronomisku kenningar, þær birtast í upphafi ogendir hverrar sögu, þar sem tekið erfiam, hvers vegna Israel hafi verið yfirunninn af öörum þjóöum, og ein- nig í all-löngum formála fyrir bókinni sjálfri, kap, 2, 6—3, 6. Hugmynd deuteronomiska útgefandans er, aö í hvert sinn sem þjóðin óhlýönaöist Jahve, guÖisínum og tilbaö aöra guöi, þá var henni refsaö með því, að vera seld á vald einhverri nágranna- þjóðinni, Þessari ógæfu fyldgi jafnan iörun, og þegar þjóöin

x

Heimir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimir
https://timarit.is/publication/440

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.