Heimir - 01.07.1910, Síða 45
H E I M I R
285
hræösla viö tómleika, sem olli óbærilegum sársauka. Ó, að þaö
væri alt búiö!
Fariniöarnir voru skoöaöir og dyrunum lokað, hún kom
aftur í Ijós í glugganum, sem var opinn. Hún hélt á blómunum
í annari hendi og vasaklútnum í hinni; hún grét. Brjóst hennar
og herðar fyltu gluggann eins og umgerð, höfuðið með hvíta hatt-
inn og blæjuna kom út úr honum. Hvers vegna mála menn
ekki þesskonar?
Reglurnar bönnuðu aö nokkur færði sig nær, á meöan yfir-
foringinn, fylkisforinginn og kvenfólkið stóð umhverfis; aliir stóðu
kyrrir þar sem þeir vorU hoinnir. Þar sem þeir, er næstir voru
töluðu ekki þögðu allir. Það sást að hún grét, sást að brjóst
hennar hreyföist. Hún sá aðra í þoku, og alt saman varð að
kvöl. Gat það alt saman veriö einlægt? Gráturinn hætti strax
aftur. Einhver fyrir neðan, með viökvæmu hjarta, sem einnig
þekti sársauka, spurði hana, hvort þær næðu heiin í dag, og því
játaði hún með ákafa. Þá tnundi hún eftir móður sinni og rýmdi
til fyrir henni en hún vildi ekki koma að glugganum. Það var
jafnvel eitthvað í auguin móðurinnar, sem í svipinn olli sársauka
eða hræöslu,—hún gleymdi því, því eimpípublásturinn skildi
lestina frá föruneytinu; hópurinn færði sig eitt eða tvö spor til
baka. Kveðjurnar voru endurteknar, auknar, hún veifaði vasa-
klútnuin sínum, ylurinn kom aftur í augu hennar, nú sleptu þeir
sér líka, hún dró þá til sín og þeir hana, þeir gengu á eftir, því
nú voru sveitarforingjarnir, allir hinir ungu orðnir fremstir. Nú
brutust aðrar tilfinningar út á nýjan hátt. Þeir kvöddu, hrópuðu,
kvöddu aftur og hlupu á eftir lestinni. Glamrið í sverðum og
sporum, litirnir, handahreyfingarnar og fótaskellirnir örfuðu
hana. Hún beygði sig út um gluggann og veifaði til þeirra, en
hraðinn var of rnikill, nokkur gálítil tilfinningaskáld hlupu þó
með, hinir stóðu kyrrir—stóðu eftir f reykjarsvælunni. Vasa-
klúturinn hennar sást ennþá eins og hvít dúfa í dökku skýi.
Þegar hún færði sig frá glugganum þurfti hún hjálpar ein-
hvers, en mundi eftir augum móður sinnar; voru þau enn-
þá eins? Já.
Svo lét hún sem hún væri ekki í geðshræringu. Hún tók