Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1916, Qupperneq 44
244
M. Stephensen: Sólin og Siríus.
I IÐUNN
tökum þátt í. Vandinn er nú að aðgreina þessar
tvenns konar hreyfingar. Það er ekki að hugsa til
að gera það beinlínis með stjörnukíkjum vorum og
stjörnuskoðunum. Herschel nolaði til þess stærðfræð-
islegar aðferðir, og þó að hjálparmeðul hans þá væru
af skornum skamti, reyndust þau nægileg í höndum
hans, og liann hoðaði öruggur uppgötvun sína á
lireyfingu sólkerfisins. Slika uppgötvun varð að prófa
með allri þeirri alvöru og nákvæmni, sem ýtarleg-
ustu sljörnufræðislegu og slærðfræðislegu rannsóknir
gátu í té látið. í þau ineira en hundrað ár, sem
liðin eru, síðan Herschel boðaði uppgötvun sína,
hefir hver stærðfræðingurinn á fætur öðrum hrotið
heilann í Jiessu vandamáli og síað það og brolið
til mergjar á allar lundir. Sljörnufræðingarnir hal'a
grannskoðað enn þá nákvæmar, en Herschel átti kost
á, stjörnurnar á norðurhvelinu, og sljörnurnar á suð-
urhvelinu, sem Herschel þekti ekki, iiafa fika verið
leiddar sem vitni. Stjörnurnar, sem hreyfast hratt,
hafa verið spurðar, og eins stjörnurnar, sein nærri
því engin lireyíing er á. En alt her að saina brunni,
alt staðfestir sannleika hinnar dýrðlegu kenningar,
sem sýnist hafa verið einn af geislunum af andagift
Hersclrels.
Vér fræðumst Jiannig um, að alt sóikerli vort með
sólunni í miðjunni, með jarðstjörnunum, sem ganga
um hana, með halastjörnunum og ineð öllum ara-
grúanum af smáhnöttum er á íleygiferð urn himin-
geiminn. Sólin rennur áfram tignarlega og hátíðlega,
eins og svo tígulegum linetti samir. Hún þarf dálítið
meira en sólarlning til að fara svo langa leið, sem
samsvarar þvermáli hennar. Á hverjum 3 dögum fer
sólkerfið áfanga, sem er hátt upp í hálfa milíón
mílna, á leið sinni lil stjörnumerkisins Hörpunnar.