Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1916, Blaðsíða 58
258
Matth. Jochumsson:
| IÐUNN
varir komast í tölu liinna betri þjóða. Því að það
er eitt af aðallögmálum lífsins, að — hið hæfasta
lifir og heldur velli!
Dvöl mín i Danmörku 1871—1872.
Kafli úr „Sögum af sjálfum mér“,
Eftir
Matth. Jochumsson.
I.
Um Magrnús Eiriksson o. fl.
Sumarið 1871 varð ég fyrir því sviplega móllæti
að missa aðra konu mina; brá ég þá til utanferðar
og fyrst til Englands með mági mínum Þorláki Ó.
Johnson, er þá átti heima í Lundúnum; hafði ég
fengið ársleyfi til burluveru frá prestsembætti á Kjal-
arnesi. Dvaldi ég rúman mánuð á Englandi, og lirest-
ist mikið við hina miklu breytingu, enda forðaðist
einveru eins og ég gat. Þá fyrst sá ég öll ríki ver-
aldar og þeirra dýrð, m. ö. orð.: ríki Englendinga
og þeirra dýrðlegu stórvirki: kirkjurnar St. Páls og
Weslminsler, Parlamentshúsið, aldingarðana miklu
o. fl.; svo og tvo keisara, þann frá Brasilíu og Na-
póleon þriðja, sem þá var að skoða tröllskipið »Great
Eastern«. Sögðu ræðarar þeir, sem ílullu mig að
skipinu, að um borð væri »franski kongurinn« og
tók ég það sem hégóma, þangað til ég mætti karli á
þilfarinu ásamt frú og syni; hann leil lil mín þreytu-
lega og var að smáypta hattinum, því mannfjöldinn