Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1916, Síða 71
IÐUNN}
Fyrirboðar.
271
og þetta mál kemur nokkuð við. Fari svo, að þetta
rætist ekki, þá skal ég aldrei taka mark á mínum
fyrirboðum framar, og þá gelið þið stritt mér eins
og þið viljið á því, hvað ég sé hjátrúarfuilur. En ef
þetta rætist, þá gerið þið svo vel að muna það, að
ég heíi lagt út í áhættuna og unniðcc.
Enginn í skrifstofunni hirti mikið um þennan fyr-
irboða Steads, og tveim mánuðum síðar fór Morley
að ráðgast við liann um ofurlitla breytingu, sem
hann hafði hugsað sér að gera á fyrirkomulaginu við
blaðið. Hann ætlaði þá að fara að endurnýja samn-
ing sinn um ritstjórn blaðsins næsta ár. Breytingin
kom ofurlítið við störfum Steads, og Morley ætlaði
að fá að vita, hvort hún væri honum nokkuð móti
skapi. »Fyrirgeíið þér, Mr. Morleycc, sagði Stead,
»hvenær á þetta nýja fyrirkomulag að komast á?cc
»í maí, hugsa ég mércc, sagði Morley. »Þá þurfið þér
ekki að vera að hafa fyrir því að tala um þelta við
migcc, sagði Stead. »Ég verð tekinn einn við »Pall
Mall Gazettecc fyrir þann tíma. Þá verðið þér ekki
hér; þér verðið í þinginucc. Þeir þæfðu um þetta
nokkuð meira. Moiiey vildi fá því svarað, hvort
Stead væri þessu samþykkur. Stead hélt sínu fram,
að það væri ekki til neins fyrir þá að vera neitt að
bollaleggja um þetta. Loks fór Morley að leiðast
þetta, varð nokkuð háleitur og spurði Stead, hvort
hann ætlaðist þá í raun og veru til þess, að hann
legðist undir höfuð að gera nauðsynlegar ráðstafanir,
al því að Stead hefði fengið einhverja vitrun.
»Alls ekkicc, sagði Stead; »auðvitað gerið þér þær
ráðslafanir, sem yður þóknast. Ég get ekki búist við
Því, að þér liagið yður eftir minni vitrun. En af því
að ég á að taka við blaðinu, þá er gagnslaust fyrir
yður, að vera að ræða þetta mál við mig. . . . Ég
sPyr yður einskis um fyrirkomulagið, af því að ég