Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1917, Page 40
230
*: Segir fátt af einum.
[IÐUNN
Hún hljóðaði þannig:
»Björn Eggertsson stúdent, vitavörður hérna úti á nes-
inu, lézt 2. þ. m. mjög snögglega af aíleiðingum ofkælingar.
Hann var mesti efnismaður. Að eins 24 ára gamalk.
Ég leit upp.
Vilhjálmur stóð úti við gluggann og hagræddi tjöld-
unum. Ég sá að eins utan á vanga hans.
Hann deplaði svo ótt augunum.
Segir fátt af einum.
Þeir fundu hann niður við flæðarmál
hjá flötum unnarsteinum.
Á blautu þangi er brautin liál
og báran kalda gjörn á rjál,
og satt er það, að segir fátt af einum.
Þeir sögðu lians vanda að silja þar
hjá sænum, yzt á hleinum,
og stara ofan á öldurnar;
en enginn veit, livað fyrir hann bar.
Á síðkvöldunum segir fátt af einum.
í dimmunni, þegar Dröfn og Mar
dansa á reknum beinum,
farðu’ ekki ofan á flúðirnar,
í fótinn oft er gripið þar,
og svo er nú það, að segir fátt af einum.