Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1917, Blaðsíða 51
IÐUNN)
Framtíöarlandiö.
241
hafði nefnilega komið hér einu sinni áður endur
fyrir löngu, sem sjóliði á einu varðskipinu danska.
Og einna mest gaman þótti honum að ganga hér
með höfninni, alla leið innan frá Iíirkjusandi, þar
sem íiskurinn er verkaður, fram hjá Iðunni, ullar-
verksmiðjunni, inn á Sláturfélagslóðina til þess að
athuga kjötframleiðsluna og svo alla leið út á »batte-
riið« eða Jörundar-vígi, sem nú er að hverfa fyrir
hafnarvirkjunum. Þar nam hann helzt staðar, benti
yfir til Örfiriseyjar og sagði: »Sko, þarna er staður-
inn, þarna eiga kornforðabúrin og mylnurnar að
veral Og þarna er framtiðar-borgarstæðið!« En þá
benti hann út á melana.
Ég var meira en lítið hissa, þegar ég heyrði þetta
fyrst; en þessi útlendingur kom mér í skilninginn
um, að hér var um mikla framtíðar-möguleika að
ræða.
Þvi er nefnilega svo farið, að það er mestu vand-
kvæðum bundið að flytja út hveiti og kornvöru síð-
sumars frá Ameriku til Evrópu. Það er svo hætt
við, að hitni í kornvörunni og hún eyðileggist á
leiðinni; en eins og kunnugt er, er Ameríka enn sem
komið er einskonar kornforðabúr og hveitiskemma
Evrópu. Og nú eru Ameríkumenn að leggja Hudson-
flóa-brautina meðal annars til þess að geta koinið
korni sínu eins norðarlega og unt er, svo að það
skemmist síður, áður en það kemst á ákvörðunar-
staði sína í Evrópu; en Hudsonflói liggur hér um
bil á sömu breiddarbaugum og ísland, þó nokkuð
sunnar, og er þó ekki íslaus nema þrjá til fjóra
mánuði árs, júlí—október. Þött kornið sé nú flutt út
frá Hudsonflóa, þá er enn hætt við því, að það hitni
í því í skipunum á hinni Jöngu leið frá Ameríku til
Evrópu. En segjum nú, að við fyndum einhverja
millistöð, einhverja stiklu í miðju Atlanzhafi.
ísland liggur nú einmitt miðja vega milli Ameríku
Iðunn II. 16