Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1917, Blaðsíða 46
236
Carlyle:
[IÐUNN
hitt alt er skólafróðleikur, — froða, sem kemur að
litlu haldi fyr en vér þá rejmum að hagnýta oss
hana í lífinu. Að hugsa um hlutina fram og aftur
og efast, en gera aldrei neitt, kemur að litlu gagni;
og þótt þú efist, ert þú engu nær. En efann sigrar
þú með athöfn þinni, og hann verður aldrei ger-
sigraður ella.
Þá er að íhuga dygðir þær, sem eru vinnuseminni
samfara, þolgæðið, þrautseigjuna, hugrekkið og hrein-
skilni þá, sem er í því fólgin að kannast við það,
liafi maður farið rangt að og vanda sig betur næst.
Dygðir þessar lærast þér smámsaman, meðan þú ert
að berjast við mótspyrnuna í sjálfum þér og efni-
viðnum, liin myrku öfl mannlífsins og náttúrunnar,
og koma þér saman við sjálfan þig og félaga þína
um, hvernig bezt muni að knýja þau til hlýðni. —
Þessi myrku, huldu öfi, sem í mótspyrnunni felast,
ber þér ekki að hata, því að þau eru í raun réttri
að hjálpa þér. þau eru að herða þig og stæla, koma
vitinu fyrir þig og kenna þér lagið. Heill þér, ef þú
gefst ekki upp gegn þeim, þá munt þú sigra. Með
þolgæði þínu, atorku, þekking þinni og kröftum munt
þú sigra alla mótspyrnu, alla örðugleika, og að sið-
ustu mun þér ef lil vill takast að krýna verk þitt
eins og Sir Christopher, er hann lagði toppsteininn
á Pálskirkjuna niiklu í Lundúnum. En liana liafði
hann bygt frá grunni, í trássi svo að segja við guð
og menn. Glím þú við guð þinn eins og Jakob forð-
um og seg: ég sleppi þér ekki fyr en þú blessar mig!
Og hann mun blessa þig, ef þú leggur sjálfan þig
fram til fulls. Æíistarf þitt mun standa um aldir og
orðið »mikilmenni« mun verða auðlesið á Portlands-
steininum þeim. Og enda þólt þú sigrir ekki, þá býr
sælan í sjálfri vinnunni.
Öll hjálp, alt liðsinni bæði í náttúrunni og mann-
lífinu kemur hægl og bítandi. Liðsinnið kemur ekki