Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1917, Page 53
ÍÐUNNI
Framtiðarlandið.
243
Ameríku og Evrópu. Þá gæti farið svo, að ísland
yrði að einskonar miðstöð verzlunarinnar milli Ame-
ríku og Evrópu, líkt og Liverpool á Englandi er nú.
Þá væri oss borgið. Þá yrði ísland fraintíðarlandið.
r
Danmörk og Island.
Eflir
Mercator.
í danska blaðinu »K»benhavn« stendur 3. nóvbr.
svolátandi grein um ísland og verzlunarviðskifti þess
við Danmörku:
»Dagblaðinu .Börsen' hefir aftur gerst tíðræll um
þá leiðinlegu staðreynd, að innflutningur á íslenzk-
um vörum til Danmerkur er því nær hæltur og að
sérslaklega sé girt fyrir allan innflutning á kjöti,
síld, saltfisk og lýsi. Þetta leiðir nú fyrst og
fremst það af sér, að Danir verða að sjá af fremur
góðri og ódýrri matvöru, og í öðru lagi leiðir það af
sér alvarlegan hnekki fyrir verzlun Dana, þar sem
þeir verða af gróðanum við innflutninginn og söluna
á þessum vörum til annara landa.
Utanríkispólitík Dana hefir algerlega brugðist í
þessu máli. Sambandið milli íslands og Danmerkur
virðist nú i rauninni vera orðið að persónusam-
bandi (personalunion), þannig að líta megi á ísland
í utanríkismálum sem hliðstælt Danmörku. Þar sem
Danmörk nú verður að fara á mis við útflutning frá
Islandi, þá er það afleiðing af verzlunarsamningi,
sem íslenzk stjórnarvöld og stjórn Breta hafa gert
16*