Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1917, Blaðsíða 93
IÐUNN|
Ritsjá.
283
Höf. gefur lesendum i prédikununum par ofurlítið sýnis-
horn þess, hvernig hann samþýðir hina nýju þekkingu
prédikunarstarfsemi sinni. Þær eru út af þeim þremur
aðalviðburðum kristninnar, sem minst er á jólum, páskum
og hvítasunnu. Ég efast um, að aðrir prestar hér á landi
hafi gert meira úr þeim viðburðum en hann gerir þar.
Sennilega verður óaðgengilegt, eftir að bókin verður komin
út til Islendinga, að halda áfram með aðra eins rokna-
fjarstæðu og þá, að Har. Níelsson neiti upprisu Krisls, og
•aðrar af sama tæi.
Það er ekki nema fátt eitt, sem ég hefi getað minst á af
því, er útlistað er í þessari merkilegu bók. En væntanlega
nægir þetta til þess að benda mönnum á, að efnið er ekki
lítilvægt. Um það er ritað af þeirri miklu mælsku og þeim
hcita og þunga sannfæringar-mætti, sem höf. heíir þegið í
svo óvenjulega ríkum mæli.
Eg veit ekki, hvernig kennilýður þessa lands tekur bók-
inni. Ég vona, að hann taki henni vel og hagnýti sér
bendingar hins lærða og áhugasama höfundar til þess að
lífga við þá kirkju, sem prestunum hefir verið trúað fyrir,
en svo víða er að veslast upp i höndunum á þeim.
Hitt veit ég, að á alþýðu manna liefir þessi bók mikil
áhrif. Pað er alkunnugt, hver feikna-áhrif höf. heíir haft,
þar sem hann hefir flutt fyrirlestra eða prédikað. Nú nær
hann til margfalt íleiri manna. Enginn vafi er á því, að
bókin léttir mikillega undir fyrir þeim prestum, sem kunna
að vilja leggja kapp á að koma safnaðarmönnutn sinum í
skilning um »stórmerki guðs«. En sennilega eykur það líka
örðugleikana fyrir þeim prestum, sem aldrei hafa neitt
nýtilegt á boðstólum, og aldrei hafa lund til þess að sam-
þýða hug sinn neinum nýjum sannleika, að alþýða manna
fái að sjá sýnishorn þess bezta, sem boðið er hér i höfuð-
staðnum í andlegum efnum.
Pað fær hún í þessari bók. E. II. K.
Geymi mér réttinn til að gagnrýna þessa bók síðar frá
sálarfræðislegu sjónarmiði. A. II. B.