Iðunn : nýr flokkur - 01.07.1925, Side 12
170
Matthías þórðarson:
IÐUNN
hann hafði verið á byskupsskrifstofunni. .Var það lagt á
borð við háskólapróf. Er.da hafði Geir byskup lagt svo
fyrir áður en hann féll frá. Fyrir bænastað móður sinnar
sótti Gunnar nú um Laufás og var honum þegar veitt
brauðið.1 2) Vígðist hann um vorið 1. júní og fór norður.
Þóru dóttur sinni hafði hann komið nýfæddri í fóstur
hjá vini sínum, Sigurði land- og bæjarfógeta Thorgrím-
sen. Tók hann við þeim embættum sama árið og Þóra
fæddist og fékk lausn frá þeim þetta ár er Gunnar fór
norður. Tók nú séra Gunnar Þóru dóttur sína með sér
norður og skyldi hún stýra búi hans. Má af því marka,
að hún hefir þótt efnileg, að eins 16 ára að aldri.2) Þau
fóru landveg norður, munu hafa farið Sand og varð
Jónas Hallgrímsson þeim samferða. Hann var í Bessa-
staðaskóla, hafði verið þar 5 síðustu vetur og útskrif-
aðist þaðan næsta vor. Hann átti heima á Steinstöðum í
Öxnadal; þar bjó móðir hans og var hann að fara heim
til hennar í sumarfríinu. Hann var tvítugur að aldri,
glæsimenni að andlegri atgervi og ytra útliti. Þeim Þóru
og honum leizt vel hvoru á annað, hafa ef til vill verið
búin að kynnast eitthvað áður en þau urðu samferða
norður, en á leiðinni fengu þau innilega ást hvort á
öðru. A Steinstöðum urðu »ferðalok« fyrir Jónasi og var
þar slitið samfylgdinni; þau séra Gunnar og Þóra héldu
áfram að Laufási, en Jónas varð eftir.. En áður en þeir
séra Gunnar skyldu bað Jónas hann um Þóru. Gunnar
1) Fékk vonarbréf fyrir því 19. maí 1828, en var veitt það
næsta ár.
2) Séra Jón Konráðsson segir að Þóra hafi verið „lítil kona
vexti, en væn, og góðhjörtuð kona." Séra Einar próf. Jónsson á
Hofi sá Þóru sexfuga á Hólum, 1872; hann segir að hún hafi
verið fyllilega í meðallagi há, en grannvaxin og holdskörp og virt-
ist hafa verið fríð sýnum.