Iðunn : nýr flokkur - 01.07.1925, Qupperneq 25
IÐUNN
Sjóorustan við ]ótland.
183
að komast öftust í línu Jellicoes, urðu þau þá fyrir
ákafri skothríð frá öllum flota Þjóðverja, er einnig var
að snúa vestur, frá Bretum og skemdust talsvert við
það. Hood reyndi að komast í línu vígdreka Beattys’,
við það komst hann nærri »Lutzow« og »Derfflinger« er
söktu skipi hans »Invincible«, kl. 6,33. Fórst Hood þar
og öll skipshöfn hans nema 8 menn. Sagði Beatty síðar
að hann hefði komið fram í orustunni eins og sæmdi
manni af hinni frægu sjóhetjuætt. En einn af forfeðrum
Hoods var flotaforingi í liði Nelsons og barðist með
honum við Abukir. Hin tvö skip Hoods komust í línu
vígdreka Beatty’s og börðust með honum það sem eftir
var orustunnar.
Nú kom það atvik fyrir, sem að vísu engin áhrif hafði
á úrslit orustunnar, en verður þó að teljast eitt af mörg-
um óhöppum Breta í orustunni, þar sem það sýnist hafa
verið algerlega óþarft. Með flota Breta voru 8 bryn-
varin beitiskip, eru það allmikil skip en öldungis ónýt í
viðureign við orustuskip og vígdreka. (Það voru slík
skip er hingað komu í fyrra »Richmond« og »Raleigh«
með amerísku flugmönnunum, að vísu nokkuð stærri
en þau er Bretar höfðu í Jótlandsorustunni). I þeim
svifum er Jellicoe var að enda við að fylkja og Þjóð-
verjar höfðu snúið vestur kom enski flotaforinginn R.
Arbuthnot með 4 brynvarin beitiskip, »Defence«, War-
rior«, »Blach Prince* og »Duke af Edinbrugh* vest-
anað, beint í flasið í Þjóðverjum. Segja Bretar að hann
muni hafa ætlað að reyna að skjóta tundurskeytum á
Þjóðverja, en hitt er líklegt, að hann hafi alls ekki vitað
hvar þeir voru, og ekki séð þá fyr en hann var kom-
inn í drápsfæri við þá. »Defence« (foringjaskip) var
þegar sökt, fórst Arbuthnot þar. »Duke of Edinburgh*
komst undan á flótta, »Blach Prince« komst einnig