Iðunn : nýr flokkur - 01.07.1925, Blaðsíða 27
IÐUNN
Sjóorustan uiÖ ]ótland.
185
Scheers er hann snéri móti Bretum aftur. Kl. 7,io lét
hann tundurspilla-flota sinn gera árás á víglínu Breta.
Tók Jellicoe á móti þeirri árás á þann hátt að telja má
að það hafi ráðið úrslitum orustunnar. Hann lét undan
síga með meginflotann, til suð-austurs, og komst við það
úr skotfæri við Þjóðverja. Tundurspillar Þjóðverja voru
hraktir aftur af tundurspillum og beitiskipum Breta og
mistu Þjóðverjar nokkur skip. —
En Beatty lét ekki undan síga. Hann hélt í suðvest-
ur með vígdreka sína og barðist ákaflega. Þegar von
Scheer sá hvað gerðist snéri hann öllum flota sínum í
vestur aftur. Mistu þá meginflotar hans og ]ellicoes sjónir
hver á öðrum, og sáust ekki eftir það, en Beatty átti í
stöðugri skothríð við Þjóðverja. Veður var nú orðið
dimt, þoka og mistur, og nóttin fór í hönd. Kl. 7,45
sendi Beatty Jellicoe hið fræga skeyti: »Látið öftustu
orustuskipin koma á eftir vígdrekum mínum. Við getum
afkróað allan orustuflota óvinanna«. Þessu skeyti svar-
aði Jellicoe ekki fyr en kl. 8,15, en þá var vígdreka-
floti Beatty’s horfinn vestureftir og tækifærinu glatað.
— Skömmu síðar dimdi af nóttu, þoka var mikil og ilt
að átta sig, Beatty sá að hann fékk engu áorkað með
vígdrekum sínum, sem voru flestir illa útleiknir, snéri
hann því frá kl. 8V2, enda vissi hann að Jellicoe var
með meginflotann á milli Þjóðverja og hafnar þeirra og
að Jellicoe vissi hvar Þjéðverjar voru. En Jellicoe sigldi
til suðurs alt kvöldið og fram til kl. 2,45 um nóttina.
Floti Þjóðverja, sem var miklu betur samtaka en breski
flotinn sigldi til suðausturs frá orustusvæðinu hér um
bil 10 enskar mílur á eftir breska flotanum. Enskir
tundurspillar og beitiskip réðust stöðugt á hann um
nóttina, Jellicoe heyrði skothríðina og sá sprengingarnar,
auk þess fékk hann stöðugt skeyti frá flotastjórninni í