Iðunn : nýr flokkur - 01.07.1925, Blaðsíða 28
186
Þorsteinn Jónsson:
IÐUNN
London, sem ávalt vissi hvar von Scheer var með flot-
ann. Þýski flotinn sigldi í góðu skipulagi yfir leið þá er
Jellicoe hafði farið, bakvið aftasta skip hans, og slapp
inn á tundurdufla svæði sitt við Hornrif. Þá var Jellicoe
30—40 mílur vestar með flota sinn á norðurleið. —
Sagði Jellicoe, að ástæðan fyrir því að hann hefði snúið
við, til norðurs, hefði verið sú, að floti sinn hefði
verið tvístraður víðsvegar, að hann hefði ekki verið í
sambandi við vígdrekana og tundurspillana, og að flota-
stjórnin enska hefði tilkynt sér að þýskir kafbátar væru
í nánd. Auk þess hafi skygni verið afarslæmt. — Um
nóttina söktu Bretar þýska orustuskipinu >Pommern«,
var það gamalt skip. »Lútzow« sökk og um nóttina, en
Þjóðverjar björguðu þeim er eftir lifðu af skipshöfninni.
Tveim þýskum beitiskipum, óbrynvörðum, var sökt, hétu
þau »Rostock« og »Wiesbaden«. Bretar mistu nokkra
tundurspilla. Af báðum flotum voru mörg þau skip er
til hafnar komust stórskemd og lítt sjófær, sérstaklega
vígdrekarnir, þó kvað meira að skemdum og mannfalli
á breska flotanum, þeim er Beatty hafði yfir að ráða.
Aðalfloti Jellicoes var nær skrámulaus, enda getur naum-
ast kallast að hann tæki þátt í orustunni. — Þannig
lauk hinni miklu Jótlandsorustu.
VI.
Eins og áður var getið þóttust báðir hafa unnið sigur
í orustunni, Bretar og Þjóðverjar. Höfðu báðir nokkuð
fil síns máls, en sannleikurinn er sá, að engin veruleg
úrslit urðu. Bretar höfðu Þjóðverja í hendi sér, en not-
uðu ekki tækifærið. Vafalítið er talið, að ef David
Beatty hefði verið yfirforingi flota Breta, þá hefði þýski
flotinn verið gereyddur, eða því sem næst. Sennilega
hefði Beatty komið á vettvang búinn til orustu, en Jellicoe