Iðunn : nýr flokkur - 01.07.1925, Page 31
IÐUNN
Sjóorustan við Jótland.
189
höfn, og gerðu þeim þann geig, að þeir reyndu aldrei
framar að etja kappi við aðalflota Englendinga.
Nokkru eftir orustuna lét Jellicoe af stjórn flotans og
hlaut embætti í flotastjórninni (1. sjó-lávarður) en D.
Beatty tók við yfirstjórn flotans.
Þorst. Jónsson.
Skyrtu-söngurinn.
Eftir Thomas Hood.
Höf. þessa kvæðis var skotskur og var einn í hinni fögru og
■súgmiklu skáldafylkingu Englendinga, er fram kom á fyrri hluta 19.
aldar. Sagt er að hann hafi alla æfi átt við fátækt og heilsuleysi
að stríða. Og fátækur verkalýður átti alla tíð heita og óskifta
samúð hans. Skáldskapur hans er einnkennilegt sambland gleði og
sársauka. En þegar þetta kvæði kom: The song of the shirt, þá
er sagt að öll enska þjóðin hafi staðið á öndinni og starað á
Thomas Hood. Kvæðið varð heimsfrægt. En hann bað, að letrað
■yrði yfir gröf hans að honum látnum: Hann kvað Skyrtu-sönginn.
Pýð.
Með þreytta, hrörnandi hönd,
með höfug augnalok þjáð
sat fátækleg kona með bleika brá
bogin við nál sína og þráð.
— Sting — sting — sting!
Svo fátæk og fagnaðarlaus!
Um fallega skyrtu söng sem í draum
svo klökk að hug við hraus.