Kirkjuritið - 01.07.1937, Page 16
254
Bjarrii Jónsson:
Kirk.juritið.
vígður til prests 26. júní 1910 af Þórhalli biskupi
Bjarnarsyni. Var ég prestur með séra Jóhanni Þorkels-
syni í 14 ár, og er hann sagði lausu embætti sínu, var
mér 10. júlí 1924 veitl dómkirkjuprestsembætlið. Var ég
einn prestur við dómkirkjuna um eins árs skeið fram
til vorsins 1925, er séra Friðrik Hallgrímsson tók við
embætti sínu, og höfum við starfað saman bér í söfn-
uðinum síðustu 12 árin.
Þegar ég varð prestur og fluttist liingað til Bevkja-
víkur, bjó ég fyrstu árin með móður minni, og eftir að
ég stofnaði mitt eigið heimili, var bún á beimili okkar
bjónaiina. Andaðist bún 29. apríl 1923.
Arið 1913 kvæntist ég konu minni Áslaugu Ágústs-
dóttur. Voru foreldrar bennar Anna og Ágúst Bene-
diktsson verzlunarstjóri á ísafirði. Andaðist faðir konu
minnar 1901, en móðir hennar á beima bér í bæ. Kona
mín og ég vorum gefin saman hér í dómkirkjunni af
séra Jóhanni Þorkelssyni. Hefir kona mín verið mér til
ómetanlegrar hjálpar i starfi mínu, og befir beimili
okkar, við og börnin okkar þrjú orðið mikillar bless-
unar aðnjótandi.
Samfleytt 27 ár befi ég gegnt prestsstarfi bér í bæ,
og befi lialdið margar ræður og gert mörg prestsverk.
En oft befir j)að valdið mér mikillar brygðar, bve mikið
ég liefi orðið að vanrækja, af j)ví að kraftar mínir hafa
náð of skamt í svo umsvifamiklu starfi. En umburðar-
lvndi og vináttu margra liefi ég mætt og í ríkum mæli
notið margvíslegrar gleði og uppörfunar bjá söfnuði
mínum og bæjarbúum yfirleitt. Geymi ég um slíkt
margar minningar og gleðst yfir því á hverjum degi.
Frá því ég varð prestur befi ég verið starfandi í
K. F. U. M. og befi verið þar formaður rúman aldar-
fjórðung. Prófdómari befi ég verið í guðfræðideild frá
j)ví að Háskóli íslands tók til starfa, og um mörg ár
befi ég ált sæti í skólanefnd Kvennaskólans í Beykja-