Kirkjuritið - 01.07.1937, Síða 39
Kirkjuritið.
SÉRA SIGFÚS JÓNSSON
FYRRUM PRESTUR AÐ MÆLIFELLI.
Hann andaðist 8. f. m.
að Nantabúi í Skagafirði
á ferðalagi þar nm sveit-
ina, því að eins og kunn-
ugt er, þá átti liann heima
á Sauðárkróki og liafði
gegnt þar kaupfélags-
stjórastöðu um 18 ára
skeið eða frá því er hann
i fardögum 1919 lét af
prestskap.
Þótt séra Sigfús væri
fvrir löngu horfinn úr
tölu starfsmanna kirkju
vorrar, hefir ritstjórum
„Kirkjuritsins“ þótt hlýða
að hans væri getið látins i því riti og mælzt til þess við
mig, að ég ritaði fyrir það nokkur minningarorð um
þennan látna félaga minn, skólabróður, hekkjarhróður
og sessunaut á löngu liðinni tíð. Við þeim tilmælum
liefi ég viljað verða.
Við gengum saman inn í lærða skólann fvrir 57 ár-
um og hófst þar viðkynning okkar. Við fylgdumst að
hekk úr bekk, unz við lukum stúdentsprófi 1886. Þrjú
síðari ár skólaverunnar vorum við sessunautar og' lás-
um þá líka saman undir vorpróf á liverju vori. Ég tel
mér það jafnan til hamingju, hve góðum liój) bekkjar-
hræðra ég lenti í, er ég kom i lærða skólann, enda liefi
ég borið hlýjan hug til þeirra allra alt til þessa dags,
og þá ekki sízt til séra Sigfúsar, þótt leiðir skildi með