Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.07.1938, Page 43

Kirkjuritið - 01.07.1938, Page 43
Kirkjuritið. Hinn almenni kirkjufundur. 299 þess merki, þegar þeir komu í kenslustundina, að skapið var ekki komið í samt lag. Mér virtist, að það mundi korna áð litlu gagni, þótt ég færi að tala við þá strax um efnið, sem fyrir lá í hvert skiftið. En þá lét ég börnin æfinlega syngja, því að þau höfðu góðar raddir. Við sungum sálma þangað til ró var komin yfir hugina, hvort sem það tók nú 5, 10 eða 20 mínútur. Og þegar því marki var náð, var byrjað á viðfangsefni tímans og alt gekk prýðilega. Á skólaárum barnanna hefst svo kristindómskensla prestanna. Þeim er ætlað, auk sögulegu frœðshinnar, að annast þann þátt trúarbragðafræðslunnar, sem segja mætti, að væri trúfræðilegur, að svo miklu leyti, sem þroski og skilningur barnanna leyfir. — En til trúfræði teljast ýms þau atriði, sem kristnir menn deila um innbyrðis. Skólarnir forðast slíkar deilur, svo sem sjálfsagt er, enda eru þær þess eðlis, að börn ættu allra sízt að dragast inn i þær á nokkurn hátt. — En vandi er hér hjá skólunum, ekki síður en heimilunum. Finna kennarar einnig vel til þess, ekki síður en foreldrar. En samvizkusamir uppalendur trúa því, að „Guð styrkir góðan vilja“. — En hér er rétt að minnast þess, vegna þess, að ég býst við því, að i umræðum vegna þessa vanda hafi stundum heyrst raddir um, að kennurum væri sumstaðar van- treyst til kristindómskenslu og að sumir þeirra vildu helzt ekki kenna kristindóm. — Ég hygg, að miklu minni brögð séu að þessu en sumir vilja vera láta — og ekkert óeðlilegt, þó að þetta komi fyrir. Þvert á móti. Trúmálin eru svo viðkvæm og skoðanir manna á þeim svo margvíslegar, að ekki er óeðlilegt, þótt ein- hver og einhver segi, að þessi eða hinn kennarinn kenni ekki nógu vel, og hver er það, sem er viss um að gera nógu vel, eða hafi einhvern annan skilning — segjum t. d. á eilifri útskúfun — en aðstandendur barnanna. Eða þá hitt, að kennari óski eftir þvi að kenna ekki kristindóm. Það þarf ekki að benda á trúleysi kennarans, heldur gæti það stafað af óvenjulegri samvizkusemi. Getur lika verið, að skoðanir hans á trúmálum séu þannig, að hann vilji heldur vera laus við að kenna um þau efni. — Það er lika eðlilegt. Hann getur verið prýðilegur kennari fyrir því i öðrum námsgreinum. Ég hefi spurst fyrir um það á fræðslumálaskrif- stofunni, hvort mikil brögð væru að því, að kennarar óskuðu ekki eftir að kenna kristindóm. Fulltrúi fræðslumálastjóra tjáði mér — og leyfði að hafa eftir sér — að hann myndi eftir 2 eða 3 dæmum utan Reykjavíkur, þar sem kennari hefir óskað eftir að vera laus við kristindómskenslu vegna þess eins, að hann treysti prestinum betur, og því falið hana prestinum, með fullu samþykki foreldra barnanna. Mín skoðun er sú, að kennarar, sem þannig fara

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.