Kirkjuritið - 01.01.1950, Blaðsíða 6
Sálmur,
Lag: Gegnum hættur (og fleiri, t. d.: Ó, þú djúpa undra náð).
Kirkju Krists í heimi hér
hlutverk dýrlegt falið er:
Frelsi’ að vitna’ um frelsarans,
flytja mönnum boðskap hans.
Gleðiboðskap grátendum,
gæfuboðskap vansælum
hvíldarboðskap hugþreyttum,
hjálparboðskap aðþrengdum.
Nægtaboðskap nauðstöddum,
náðarboðskap gjörspilltum,
líknarboðskap lemstruðum,
Ijóssins boðskap alblindum.
Frelsisboðskap fjötruðum,
friðar-boðskap stríðendum,
kærleiksboðskap kúguðum,
krossins boðskap syndurum.
Sýknuboðskap sakfelldum,
sæluboðskap fátækum,
lausnarboðskap líðendum,
lífsins boðskap deyjendum.
Fræðsla og starf vors frelsara,
fæðing, dauði, upprisa
fela þetta í sér allt.
Aðeins Krist þú boða skalt.
Magnús Guðmundsson.