Kirkjuritið - 01.01.1950, Blaðsíða 69
Aðalfundur Prestafélags Vestfjarða.
Aðalfundur Prestafélags Vestfjarða hófst laugardaginn 10.
sept. að Bjarkarlundi í Reykhólasveit. Mættir voru 9 starfandi
prestar af félagssvæðinu og prófessor Ásmundur Guðmunds-
son, formaður Prestafélags íslands. Fundurinn hófst með því,
að sunginn var sálmur, og annaðist Jónas Tómasson tónskáld
á ísafirði undirleik. Þá las formaður félagsins, sr. Eiríkur J.
Eiríksson, Núpi, ritningarorð og flutti bæn. Þá minntist hann
látins félaga, sr. Páls Sigurðssonar, Bolungarvík, og risu fundar-
menn úr sætum, til þess að votta þessum látna félaga virðingu
sína og þakklæti. Síðan las formaður bréf, sem fundinum hafði
borizt frá fjarverandi félaga, sr. Jónmundi Halldórssyni, Stað,
Grunnavík.
Formaður flutti síðan framsögu í aðalmáli fundarins: Kirkjan
og menningarlíf þjóðarinnar.
H. mál fundarins: Bændakirkjur og safnaðarkirkjur. Fram-
sögumaður sr. Einar Sturlaugsson, Patreksfirði.
m. mál: Kirkjudagur. Framsögumaður sr. Jón Kr. ísfeld,
Bíldudal. í því máli var samþykkt svohljóðandi ályktun:
„Aðalfundur Prestafélags Vestfjarða ályktar að stefna
beri að því, að komið sé á í söfnuðunum almennum kirkju-
degi, þar sem aflað sé fjár til fegrunar kirknanna og um-
hverfis þeirra og stuðlað á annan hátt að kirkjulegri menn-
ingu. Jafnframt beinir fundurinn þeim tilmælum til bisk-
upsins, Prestafélags Islands og kirkjuráðs, að samið verði
sérstakt helgisiðaform fyrir slíkan kirkjudag, fyrsta sum-
ardag, sjómannadaginn, 1. maí og 17. júní.“
IV. mál: Kirkjan og útvarpið. Framsögum. Þorsteinn Bjöms-
son, Þingeyri.
V. mál: Gjaldkeri, sr. Einar Sturlaugsson, lagði fram endur-
skoðaða reikninga, og voru þeir samþykktir.
VI. mál: Stjómarkosning. Stjómin var endurkosin, en hana
skipa: Sr. Eiríkur J. Eiríksson, Núpi, formaður, sr. Einar
Sturlaugsson, prófastur, Patreksfirði, gjaldkeri og sr. Jón
Kr. Isfeld, Bíldudal, ritari.
Umræður á fundinum vom miklar og almennar, einkum um
aðalmál fundarins. Auk mála, sem fyrir fundinn vom lögð til
umræðu, sagði sr. Sigurður Kristjánsson, ísafirði, frá dvöl