Kirkjuritið - 01.01.1950, Blaðsíða 70
68
KIRKJURITIÐ
sinni í Englandi á s. 1. vetri. Þá kom Guðmundur Sveinsson,
Tálknafirði, á fundinn og ræddi nokkuð slysavarnamál.
Fundinum lauk síðdegis þriðjudaginn 13. sept. með söng,
er Jónas Tómasson, tónskáld, annaðist, en prófessor Ásmundur
Guðmundsson, er setið hafði fundinn og tekið virkan þátt í
honum, las ritningargrein og bað bænar.
í sambandi við fundinn fór fram guðsþjónusta í Reykhóla-
kirkju, sunnudaginn 11., þar sem prófasturinn, sr. Einar
Sturlaugsson, setti hinn nýkjöma prest að Reykhólum, sr.
Þórarin Þór, inn í embættið. Skím og altarsganga fór fram
í guðsþjónustunni. Sr. Þorsteinn Björnsson tók til altaris. Söng
í kirkjunni annaðist nýstofnaður kirkjukór Reykhólakirkju,
undir stjóm Jónasar Tómassonar. Eftir guðsþjónustuna bauð
forstjóri tilraunastöðvarinnar að Reykhólum, Sigurður Elías-
son, og frú hans prestunum til kaffidrykkju á heimili sínu.
— Síðan flutti prófessor Ásmundur Guðmundsson erindi í
Reykhólakirkju: „Jesús hefur starf sitt.“ Erindinu var forkunn-
arvel tekið, enda fróðlegt og áhrifamikið. — Að því loknu sátu
fundarmenn, félagar kirkjukórsins o. fl. boð sóknamefndar
Reykhólasóknar, en því hófi stjómaði Magnús Ingimundar-
son, Bæ. — Um kvöldið skoðuðu prestamir Reykhólastað.
Ján Kr. IsfeldL.
Bœkur.
En dansk præste og sognehistorie 1849—1949.
Samlet og udgivet af Paul Nedergaard sogne-
præst. O. Lohses Forlag Eftf. Köbenhavn
1949.
Séra Paul Nedergaard, prestur við St. Matteusarkirkjuna
1 Kaupmannahöfn, er mikilvirkur rithöfundur. Hann hefir
samið fjölda bóka og auk þess verið ritstjóri í mörg ár. Nú
er þetta nýja rit eftir hann tekið að koma út á aldarafmæli
Grundvallarlaganna, en við þau varð til að dómi hans hug-
takið: Danska þjóðkirkjan. Ritið er lýsing á skipulagi og
högum kirkjunnar í Danmörku á þessum 100 ámm og æfi-
ágrip þjóna hennar. í fyrsta heftinu segir frá kirkjustjóm-
inni, menntamálaráðuneytinu og kirkjumálaráðuneytinu, guð-