Kirkjuritið - 01.01.1950, Blaðsíða 71
BÆKUR
69
fræðisdeild Háskólans, biskupunum yfir Sjálandi og nokkrum
próföstum og prestum Kaupmannahafnar. Hér er um að ræða
mikla fróðleiksnámu, og er skemmtilegt að lesa mannlýsing-
arnar. Eru í bókinni eftirmæli um látna þjóna kirkjunnar á
þessu tímabili og varpað yfir marga þeirra skýru ljósi. Um
mestu menn dönsku kirkjunnar, svo sem Mynster og Martensen,
eru langar ritgerðir. Gjöra má ráð fyrir, að ýmsa íslenzka
presta fýsi að kynnast æfi og starfi embættisbræðra sinna
í Danmörku, og gefst þeim nú gott tækifæri til þess, ef þeir
eignast þessa bók. Sama má segja um Kirkelig Haandbog
eftir séra Paul Nedergaard. Sjöunda útgáfa hennar er frá 1947.
Frank N. D. Buchman: Remaking The World.
Dr. Frank Buchman, höfundur siðbótarhreyfingarinnar nýju,
sem upphaflega var kennd við Oxford, er sístarfandi að vexti
hennar og viðgangi. Hann hefir nú ekki alls fyrir löngu gefið
út safn af ræðum sínum og nefnir þær: Remaking the World.
Ræður þessar lýsa þróun hreyfingarinnar, starfsaðferðum og
hugsjónum. Þær eru mjög hollur og góður lestur. Bókin er gef-
in út í London 1947.
Frederik Torm: Nytestamentlig Tidshistorie, Köbenhavn 1946.
Prófessor dr. Frederik Torm er afkastamikill rithöfundur.
Einkum hefir hann verið duglegur við samningu kennslubóka
handa nemöndum sínum í guðfræðisdeild Hafnarháskóla. Þykir
mörgum hann helzt til þröngsýnn og íhaldssamur. Þessa gætir
eigi í bók þeirri, sem hér er nefnd, og má mæla með henni sem
ágætri aldarfarslýsingu á Gyðingalandi á tímum Nýja testa-
mentisins.
John Erskine: The Human Life of Jesus. New York 1945.
Bók þessi er skrifuð af mikilli þekkingu og lærdómi og létt
aflestrar, en sumstaðar brestur á nákvæmni og sögulega rann-
sókn.
MYNDIN
framan á kápu Kirkjuritsins er af tuminum við dómkirkjuna
á Hólum. Sigurður Guðmundsson húsameistari gjörði upp-
dráttinn.