Kirkjuritið - 01.01.1950, Blaðsíða 67
MINNINGAR ÚR PRESTASKÓLA
65
þó veður væri ekki gott, og hve ánægjulegt var að heilsast og
kveðjast á hverjum helgidegi með hlýhug og vináttu. Og mér
fannst ég opt færast nær Guði og samfélagi við hann í hans
heilaga húsi, við messugerð, sér í lagi við altarisgöngu og
önnur hátíðleg tækifæri. Mér fannst þá hugur minn og hjarta
hefjast yfir hið hversdagslega og leita hærra, og ég finna
kraft frá hæðum, og mér líða vel.
Drottinn blessi kirkju fslands og kirkju fslendinga í Vestur-
heimi og alla starfsmenn kirkjunnar, æðri sem lægri, og glæði
og efii bróðurkærleika og einingu meðal vor í anda Jesú Krists.
Hann varðveiti oss alla nú og ávallt í Jesú nafni.
Einar Thorlacius.
Sjötta ársþing
norðlenzkra presta, kennara og annarra áhugamanna um
kristna og þjóðlega menningu var haldið á Húsavík 17. og
18. sept. sl. Framsöguerindi fluttu: Jónas Jónsson, kennari,
Akureyri, um þegnskylduvinnu, séra Benjamín Kristjánsson,
um gamla og nýja guðfræði, séra Páll Þorleifsson, um Barth-
guðfræðina, Eiríkur Sigurðsson, um guðspeki, og Sigurður
Gunnarsson, skólastjóri, Húsavík, um skógræktarmál. Þingið
samþykkti þessar ályktanir:
I.
Fundurinn lítur svo á, að íslenzk þjóð sé nú í alvarlegri hættu
stödd varðandi uppeldi, þegnskap, skyldurækni og viðhorf til
líkamlegrar vinnu, einkum sá hluti hennar, sem býr í kaup-
stöðum, og sé þess brýn nauðsyn, að leitað sé úrræða og um-
bóta. Telur fundurinn í því sambandi tímabært, að endurvekja
þegnskylduvinnumálið. Æskilegt sé, að þegnskylduvinna, sam-
ræmd nútíma viðhorfi, verði í einhverri mynd framkvæmd í
landinu. Vill fundurinn benda á eftirfarandi leiðir:
1. Kaupstaðir og hreppar dragi ekki lengur að taka til um-
ræðu framkvæmd heimildarlaga um þegnskyldu, nr. 63,
5