Kirkjuritið - 01.01.1950, Blaðsíða 32
30
KIRKJURITIÐ
á það. En eins og yfir örsmæðinni hvílir yfir þessu vamar-
bandalagi hulin vemd. Skoðið alveldi Guðs, — í örsmæð
sem alstærð, — að alnánd sem alfirð, og sjá, þar ríkir
eining, og ekkert annað en eining í óendanlegri fjölbreytni.
Kjami Guðs lögmáls er skýr, og hann felur í sér prédikun.
Hún snýst um lífsháttsemi. Það er eggjun um bróðurlega
samvinnu í öllu skapandi starfi — herhvöt til vinsamlegs
sambýlis, þrátt fyrir andstæður að eðli og háttum. f Guðs
lögmáli á ekkert ofbeldi heima. Einræði er frávik frá lög-
um hans og réttri leið.
Þannig talar Guð til vor í sínu heilaga, óritaða orði. Ég
legg lögmál hans fyrir yður á þessari vígslustund sem
reglu um lífið frá hæðum, og sem vegvísi út í gegnum
árin. Og vegna þess að ég veit, hversu þessi regla er til-
komin, þá get ég með fullri einlægni og djörfung gjört
ummæli spámannsins að mínum og sagt með honum: „Sjá,
ég hefi í dag lagt fyrir yður líf og heill.“
Vér endurtökum: Lögmál Guðs er lögmál einingar og
bræðralags. Látum þvi allt, sem sundurdreifir, blikna í
baksýn. Vinnum að „samvígslu“ allra öfga, en ekki að
sundrung. Munu þá mörg myrk kvöld deyja, og Drottinn
láta morgna.
ÞÓRÐUR KRISTJÁNSSON KENNARI
frá Suðureyri í Súgandafirði stundar í vetur framhaldsnám
í kristnum fræðum við Kennaraháskólann í Kaupmannahöfn.
Þaðan mun hann halda til Noregs til námsdvalar. Þórður er
áhugamaður hinn mesti og frábærlega laginn kennari í kristn-
um fræðum. Má mjög mikils af honum vænta, ef honum end-
ist líf og heilsa. Ef til vill mun Kirkjuritið síðar segja nánar
frá námi hans.